fimmtudagur, nóvember 24, 2005

 

Snúningurinn tekinn

 

Nína Þorbjörg var svakalega ósátt við að fara að sofa í gærkvöldi, eins og undanfarin kvöld. Ákváðum að leyfa henni að vaka til miðnættis með okkur og síðan ætlaði ég að nota uppáhaldssvæfingaraðferðina hennar og kúra með hana undir sæng og gefa henni að drekka í myrkrinu þannig að hún sofnaði út frá því. Þessi aðferð er með öllu stranglega bönnuð skv. svefnsérfræðingum og elur af sér hin erfiðustu kríli...er bara orðin svooo þreytt á kvöldveseninu að ég ætlaði hér með að gefast upp og láta þetta eftir henni. En, æ æ, er þetta bara ekki einu sinni nógu gott lengur! Mjög súr mamma þurfti því að klæða sig aftur og fara fram með bálreiða og hágrátandi stelpu til að pabbi gæti sofið. Sat fyrir framan sjónvarpið og horfði á næturhrafnadagskránna á Skjá 1, ótrúlega þreytt og fúl í skapi, meðan Nínan spriklaði og var hin hressasta í sófanum hjá mér. Hún veit sko hvað hún syngur því mitt í allri mömmufýlunni tók hún sig til og velti sér af bakinu yfir á magann, takk fyrir! Hefur aldrei gert þetta fyrr og vakti þetta því svakalega lukku hjá súru mömmunni sem gleymdi alveg að vera í fýlu. Nína Þorbjörg endurtók síðan leikinn tvisvar og innsiglaði þannig stöðu sína sem stjarna næturinnar. Um kl. 2 ákvað stjarnan að tími væri kominn á fegurðarblund og leyfði mömmunni náðarsamlegast að bera sig inn í rúm. Svaf síðan eins og hetja eftir öll átökin.
Á meðfylgjandi mynd sýnir Nína hvað henni finnst um öndina....er venjulega í miklu uppáhaldi... Posted by Picasa

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?