föstudagur, nóvember 25, 2005

 

Svalasta skutlan á svæðinu

 

Jæja, það kom að því að stelpan fengi fyrstu sprautuna, enda orðin 3 mánaða alveg síðan í gær. Var reyndar ekki búin að kvíða þessu neitt eins og flestar mömmur, hef nefnilega séð barnalækninn hann Svein að verki þegar ég var að vinna á heilsugæslunni og var sérstaklega sátt við vinnubrögðin. Það var kannski eins gott að ég þjáðist ekki af taumlausum sprautukvíða því ég var í nógu stressi fyrir. Linda vinkona varð 28 ára á þessum fallega degi og hafði boðið nokkrum stelpum til sín í hádegissúpusötur, þ.á.m. okkur Nínu Þorbjörgu. Ég brunaði því upp í Bólstaðarhlíð til hennar á hraða geimskutlunnar, allt of sein, spólaði yfir grasið á Miklatúni til að reyna að stytta mér leið og mætti loksins lafmóð og rauð eins og epli í dyragættinni hjá Lindu. Seinkunin stafaði að sjálfsögðu af því að Nínan ákvað að pissa yfir okkur báðar þegar við vorum á leið út úr dyrunum og þar með varð að endurhugsa fatavalið frá grunni. Ég þambaði þessa fínu súpu eins og ég ætti lífið að leysa og skaust svo aftur út á sama hraða og ég kom hálftíma síðar. Þá tók við 40 mínútna kraftganga niður á Vesturgötu með vagninn á undan mér eins og valtara, valtaði nánast yfir annan hvern mann sem var svo óheppinn að mæta mér. Náði rétt í tæka tíð á heilsugæsluna og var enn snarbrengluð í höfðinu af súrefnisskorti þegar kom að okkur mæðgum. Nína Þorbjörg dottaði í gegnum öll lætin og var hin hressasta þegar kom að henni að sýna kúnstir sínar hjá lækninum. Gaf ekki frá sér píp þegar hún var sprautuð og vakti almenna lukku á staðnum. Talandi um það, nýjasta tölfræðin fyrir áhugasama:
Lengd: 62 cm
Þyngd: 6350 g
Höfuðmál: 41 cm
Heyrði því fleygt á göngunum að barnið væri alið á heimatilbúnum lúxusrjóma...
Alla vegana, þá var þetta hinn besti dagur eftir allt saman, fyrir utan hossið í vagninum heim þegar mamman klessti á kanta og dyraþrep í gríð og erg sökum þreytu (er ekkert í besta forminu þessa dagana). Nínan er enn sofandi þegar þetta er ritað, með smávegis auma rasskinn er ég viss um. Posted by Picasa

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?