sunnudagur, desember 04, 2005
Drottning skemmtanalífsins
Jæja, er komin á eins gott skrið í skemmtanabransanum eins og mögulegt er fyrir móður 3 mánaða barns. Skrapp út BÆÐI á föstudags- og laugardagskvöld og er endurnærð á eftir...rosalega gott að fá smá pásu og auðvitað enn betra að hitta Nínu Þorbjörgu aftur. Ætlaði ekki að hafa mig af stað á föstudeginum, rosa þreytt eftir margar svefnlausar nætur í röð og alls alls ekki að nenna að dúlla mér við að mála mig og velja dress og svoleiðis. Var hins vegar mjög fegin að ég skildi drattast af stað enda ferðinni heitið á rosalegt jólahlaðborð á Hótel Sögu með öðrum unglæknum. Nína Þorbjörg (plús hálf búslóðin sem fylgir henni hvert sem hún fer) fór í pössun hjá ömmu og afa í Hellulandi og var kvöldið hið ánægjulegasta þar á bæ að sögn.
Jólahlaðborðið var sem fyrr segir svakalegt, sérstaklega forréttirnir þar sem næstum allt er hrátt (túnfiskur, lax, nautakjöt, skelfiskur...) og þar með algjörlega á vinsældarlistanum hjá mér. Með þessu var borið fram ekta kampavín úr risaflöskum, alveg eins og það gerist best sko.
Á laugardagskvöldið fór ég síðan í Betupartý í Breiðholtið og skipti svo við Árna Grím sem skrapp á Kaffi Vín (???) að hitta gömlu Árbæjarklíkuna. Á Kaffi Vín (???) fæst víst metri af bjór á spottprís og ekki verra að byrja djammferilinn eftir fæðingu barns á svoleiðis stað. Má segja að kvöldið hafi endað vel hjá Árna Grími, þ.e. á Pizza Pronto eftir misheppnaða tilraun til að fá sér pylsu með nautahakki (alveg það svakalegasta ógeð sem ég get ímyndað mér). Við erum því að komast í gírinn aftur bæði tvö. Ætlum að trappa okkur upp hægt og rólega og hver veit hvort það styttist ekki bara í að Árni Grímur geti tekið sjöuna (þ.e. verið úti til 7). Held samt að "drottningin á heimilinu sem öllu ræður" verði að læra að sofa betur áður en að því kemur...
