laugardagur, desember 17, 2005

 

Endurbætur á síðunni....

 

Já já já....nú stendur fyrir dyrum að flikka upp á síðuna. Það hefur verið í farvatninu hjá Árna Grími að setja inn myndasíðu, enda erum við komin með alveg gommu af myndum eins og þykir sjálfsagt þegar frumburður á í hlut. Veit ekki alveg hvar í farvatninu þessi síða er stödd eins og stendur, en vonandi hún fari að dúkka upp á yfirborðið fljótlega. Eins tókst "forritaranum" mér að setja inn "comment" algjörlega án utanaðkomandi aðstoðar, þannig að endilega látið í ykkur heyra! Alltaf gaman að fá smá viðbrögð á það hápólitíska efni sem hér er að finna. Hver veit hvað fleira ég mun "forrita" á næstunni...
Annars er allt gott að frétta af Urðarstígnum og mikið fjör eins og venjulega. Árni Grímur var að fá í hendurnar mjög myndarlegan rafmagnsbassa frá Þýskalandi nú á dögunum og mikil gleði í húsinu af þessum sökum. Í kjölfarið var gerð tilraun til að pakka Nínu Þorbjörgu ofan í kassann undan fyrrgreindum bassa og senda hana til baka til Þýskalands. Hætta varð við þessi áform, enda ferðamátinn talinn óhentugur...annars hefði örugglega orðið upplifun fyrir stelpuna að kíkja á þýskt jólahald.
Ég sjálf er líka óvenjulega hress (svona fyrir áhugamenn um mína líðan). Hefur loksins skilist að barnið mitt hefur verið "forritað" (af einhverjum miður áhugasömum um mína líðan) til að sofna akkúrat klukkan þrjú á nóttunni og ekki sekúndu fyrr. Kannski ekki svo slæmt í sjálfu sér þegar maður er búinn að sætta sig við það og hættur að berjast gegn hinu óhjákvæmilega. Sannarlega bráðþroska barn hér á ferð. Við Nínan næturgöltrumst því saman í sátt og samlyndi þessa dagana og reynum að gera það besta úr nóttunum (búa til jólakort, setja í uppþvottavél og svona). Nínan er líka búin að finna nýja leið til að halda mömmu sinni upptekinni. Er farin að velta sér á magann í sífellu, en þar sem hún kann ekki að velta til baka þarf líka að bjarga henni í sífellu...mjög góð líkamsrækt (upp úr sófa-velta barni-setjast í sófa-upp úr sófa-velta barni-setjast í sófa). Enda eina líkamsræktin mín akkúrat núna (f.u. að vera eina næringaruppspretta allmyndarlegrar mannveru). Posted by Picasa

Comments:
Hæ rassarófa og múttí. Hóið í okkur ef þið viljið taka eins og einn rúnt fyrir jól, kannski upp og niður laugarann....
 
Hó hó, við skulum endilega láta verða af því sem fyrst...næst samt kannski ekki alveg fyrir jólin að þessu sinni :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?