föstudagur, desember 23, 2005
Gleðileg jól!!!
Nína Þorbjörg óskar vinum og velunnurum til sjávar og sveita gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! Þar sem hún hefur hagað sér sérlega vel undanfarið hefur foreldrunum tekist að klára jólaundirbúninginn og allir geta því andað léttar. Það eina sem er eftir er jólabaðið fyrir aðalpíuna á svæðinu, bara svona til að ná af henni skötulyktinni síðan fyrr í dag. Hún ætlar sér stóra hluti á nýju ári (og er strax byrjuð, varð 4 mánaða í dag, geri aðrir betur)...og hlakkar auðvitað til að deila þessu öllu gegnum veraldarvefinn.
Jólakveðjur frá fjölskyldunni á Urðarstígnum, hafið það gott!
Comments:
<< Home
Gleðileg jól öllsömul, ég er ekki með e-mailið þitt svo ég sendi bara jólakveðjuna svona. Bið að heilsa Begga, Alex, Róbert og lasni Daníel
Sendu inn athugasemd
<< Home

