fimmtudagur, desember 08, 2005
Haðarstígurinn og almenn miðbæjarhuggulegheit
Verð að benda áhugasömum á ágæti Haðarstígsins, þ.e. ef menn vissu ekki af þessu fyrir. Haðarstígurinn er sem sagt pínulítil gata sem liggur eins og göngustígur frá Freyjugötunni niður á Nönnugötu. Við enda þessa fína "göngustígs" (sem þó má keyra á í bílum af mjórri gerðinni) er svo eldhúsglugginn okkar sjáanlegur í öllu sínu veldi. Á þessum árstíma hafa flestir íbúar Haðarstígs skreytt húsnæði sitt hressilega og er mjög glaðlegt að horfa út um eldhúsgluggann og hafa þetta jólaland fyrir augunum. Bendi fólki á að taka Haðarstíginn með í reikninginn í gönguferðum um miðbæinn, hann er vel þess virði! Fólk spyr sig kannski hvað þetta komi Nínu Þorbjörgu við og svarið er að það gerir það eiginlega ekki. Þó er þægilega róandi að kíkja út á jólaljósin þegar hún er í sínu venjulega næturbrölti og mömmur að pirrast.
Annað sem má benda á fyrir miðbæjarferðalanga er Lækjarbrekka síðdegis. Manni hættir til að gleyma tilvist Lækjarbrekku, kannski vegna þess að hún er búin að vera til svo lengi að hún er algjörlega orðin samofin umhverfi sínu. Var á röltinu með Nínu Þorbjörgu, Helgu og Eyjólfi Loga í bænum og kom þá upp sú snilldarhugmynd að kíkja þarna inn og fá sér kaffi og vöfflur. Nína Þorbjörg svaf í vagninum allan tímann og var hægt að hafa góða yfirsýn yfir hana út um gluggann sem borðið okkar var við (var líka í startholunum að hlaupa út eins og elding ef einhverjum skildi detta í hug að stela henni...bara svo fólk haldi ekki að hér sé óabyrg móðir á ferð). Þetta var í einu orði sagt mjög huggulegt eftirmiðdagskaffi og þjónustan barasta æðisleg, þarna voru töfraðir fram alls kyns snilldarhlutir fyrir Eyjólf Loga alveg ókeypis (t.d. stappaður banani, aðalsælgætið). Eftir kaffið var farinn einn hringur í kringum Tjörnina á þrjóskunni einni saman (enda rok og myrkur og kuldi) og síðan strunsað heim. Nína Þorbjörg ákvað að vakna á Laufásveginum, beint fyrir utan bandaríska sendiráðið og sýna þannig vanþóknun sína á því batteríi. Ekki verra að litla eldfjallið sé með réttar skoðanir!
Mynd dagsins er af Eyjólfi Loga kaffifélaga og Þorgeiri pabba hans.
Comments:
<< Home
Takk fyrir "Brekkustuðið" við skemmtum okkur konunglega í þessum huggulegheitum. Kveðja, Helga og EyLo bananarama
Þökkum sömuleiðis fyrir notalega skammdegisstemningu :) Viljum endurtaka leikinn sem fyrst!
Steinunnin og Nínan
Sendu inn athugasemd
Steinunnin og Nínan
<< Home

