miðvikudagur, desember 28, 2005

 

Jólagleði og GJAFIRNAR

 

Nú eru jólin aldeilis gengin í garð á fleygiferð...Held að maður verði alltaf jafn hissa á hverju ári hvað þetta er í raun lítil og pen hátíð miðað við fyrirganginn og ofurstressið sem fer á undan henni. Nú er eins og allt sé bara búið, Létt 96.7 farið að spila venjulega væmnu velluna og búið að pakka jólalögunum niður í geymslu. Útsölurnar barasta byrjaðar í verslunarmusterunum og allir löngu búnir að gleyma jólaskapinu. Nína Þorbörg vissi svo sem aldrei af því að það væru jól (og séu enn), fann þó óþyrmilega fyrir því að þurfa að vesenast um í kjól aldrei þessu vant...a.ö.l. var enginn munur. Jú, hún fékk að vaka fram eftir...eða, gerir hún það kannski alltaf??? Verð að segja að við foreldrarnir skemmtum okkur óvenjulega vel í pakkaopnuninni þetta árið, enda fengum við að taka upp fullt af dóti (hefur ekki gerst í háa herrans tíð). Nína Þorbjörg er nú stoltur eigandi heilu húsgagnanna sem gefa frá sér hávaða og blikkandi ljós og titring og allt sem hugvitsömum leikfangaframleiðendum getur dottið í hug. Hún fékk líka hið ýmsasta dót, föt, myndir og bækur og erum við mjög þakklát fyrir! Gaman, gaman! Aðfangadagskvöld skiptist í tvennt hjá okkur þetta árið, vorum fyrri hlutann hjá systur Árna Gríms og seinni hlutann hjá foreldrum mínum. Þetta voru svolítið "geðklofin" jól, fyrri hlutinn einkenndist af hátíðnispenningi hjá börnum Kristínar Árnasystur og seinni hlutinn voru ekta fullorðins jól með portvíni og kaffi. Mjög gaman að njóta þess besta af báðum vígstöðvum. Man ekki til þess að hafa verið svona svakalega spennt yfir pökkunum þegar ég var lítil...var meira í namminu og held ég bara spenntust yfir því...tókst að borða vel yfir mig af konfekti og skila því öllu öfugu upp úr mér aftur. Hef ekki enn getað borðað svona appelsínusúkkulaðislaufur án þess að verða óglatt. Nína Þorbjörg er sem betur fer enn bara í mömmumjólkinni, sem fór örugglega í hátíðarbúning eins og allt annað...a.m.k. vonar maður að smá kanil- og möndlukeymur hafi laumað sér í hana til að gleðja litlu kelluna.
Svo erum við búin að hafa það hrikalega gott í fjölskylduboðum og líka fengið heimsóknir frá hressum vinum. Fengum meira að segja jólasöngvara á dyraþrepið á Þorláksmessu...mættu á svæðið vopnuð pökkum og "Jólasveinum einum og átta". Æ,æ, þurfti bara að sussa á söngvarana því að Nínan var sofandi...fengum þó að njóta lagsins í hvíslútgáfu. Ætlum svo að halda áfram að jólast í kvöld og kannski taka aðeins í nýja Trivial Pursuitið okkar í góðum félagsskap. Sjáum hvort allt vitið sé lekið úr mér með mjólkinni...hef þá a.m.k. ágætis afsökun... Posted by Picasa

Comments:
Hæ hó. Takk fyrir okkur í kvöld og leiðinlegt að við þyrftum að strunsa út svona akút vegna ofurpirrings lúbbakarls. Hann reyndist svo kominn með hita þegar mældur, enda svolítið rjóður í kinnum og glaseygður hjá ykkur ;)
Hafið það gott......knús í jólapoka frá Helgu og félögum
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?