fimmtudagur, desember 01, 2005

 

Músíkölsk?

 

Mér sýnist Nína Þorbjörg ætli að sýna músíkalska takta mjög snemma, a.m.k. finnst henni í einu orði sagt æðislegt þegar pabbi hennar spilar fyrir hana á gítar. Þetta er mjög þægilegt fyrirkomulag, bara hægt að leggja stelpuna á teppi á gólfinu og svo spilar Árni Grímur eins og hann er vanur og allir sáttir. Á meðan starir hún á vinstri höndina á Árna, virðist halda að tónlistin streymi þaðan á einhvern dularfullan hátt. Ef menn taka sér smá pásu eða taka sér umhugsunarfrest við spilamennskuna er mín fljót að gera athugasemd og hotta á spilamanninn...greinilega sérlega taktviss.
Var jafnvel að spekúlera í að finna einhverja leið til að spila fyrir hana sjálf, enda með heil 10 ár af píanónámi að baki (vonandi nóg til að geðjast svona baun). Þarf bara að skaffa píanó eða hljómborð og troða því inn í draslið sem fyrir er í íbúðinni...gæti orðið tæknilega mjög erfitt í framkvæmd og krafist töluverðrar sérþekkingar...
Síðan hefur söngröddin líka verið notuð heilmikið, virðist róa mannskapinn þótt ég sé nú engin Tina Turner. Gróf upp gömlu góðu Vísnabókina sem maður man eftir frá því að maður sjálfur var lítill og er búin að rúlla í gegnum hana nokkrum sinnum. Hef líka reynt að svæfa Nínu Þorbjörgu með því að endurtaka Bí bí og blaka svo oft að jafnvel sérlegum aðdáendum þess lags (ef þeir eru þá til) myndi drepleiðast. Veit ekki hvert metið er, held að það sé a.m.k. 20-30 yfirferðir. Ofsa fjör!
Annars ætlar mamman nú virkilega að fara að bursta rykið af söngröddinni þar sem heyrst hefur að gamli MR-kórinn ætli að reyna að hittast reglulega og syngja saman jólalög í desember. Líst meiriháttar vel á það, enda var óendanlega mikið stuð í kórnum á sínum tíma. Fórum meira að segja á Laugaveginn í miðri jólaösinni vopnuð "Á jólunum er gleði og gaman fúmm fúmm fúmm" og fleiri slögurum og vöktum mikla lukku. Veit ekki hvort það sé hægt að gabba ráðsetta móður í að endurtaka svoleiðis... Posted by Picasa

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?