þriðjudagur, desember 13, 2005
Óróinn...kannski ekki alveg réttnefni?

Smá ábending til mæðra framtíðarinnar og fólks í sængurgjafahugleiðingum: Kaupa óróa! Nína Þorbjörg er sem stendur með þrjá óróa í gangi á heimilinu og ekki hægt að komast upp með minna. Óróinn á myndinni er í láni frá Eyjólfi Loga og stendur fyrir 15 mínútum af stanslausu fjöri, dáleiðandi dýr svífa um loftið við undirleik gömlu meistaranna (Mozart-Beethoven-Brahms). Eins og myndin ber með sér er best að njóta óróans með alla anga úti og fullkomlega einbeitt. Á meðan geta mömmur hakkað í sig Cheerio´s eða jafnvel skellt sér í sturtu. Þannig að ef menn vilja vel nærðar og vel lyktandi mömmur í grennd við sig má benda á þetta undratól.
Kveðjur frá Steinunni og N.Þ. (tekur sér Unni Birnu til fyrirmyndar)

Comments:
<< Home
Við segjum já takk við vellyktandi mæðrum og vel mettum. Enda lánum við tæki og tól til að svo geti orðið ;)
Við erum alltaf í labbitúrum þessa dagana og ætlum að heyra í ykkur fljótlega varðandi göngutúr/búðaráp. Knús í poka frá HeyLo
Sendu inn athugasemd
Við erum alltaf í labbitúrum þessa dagana og ætlum að heyra í ykkur fljótlega varðandi göngutúr/búðaráp. Knús í poka frá HeyLo
<< Home

