fimmtudagur, desember 29, 2005

 

Desembermyndir

 

Nína Þorbjörg var liðtæk í innpökkun gjafa. Posted by Picasa

 
 

Feðgin fyrir framan jólatré. Posted by Picasa

 
 

Með Þórdísi frænku og mömmu á aðfangadag...Dagur frændi sendi Spiderman inn sem sinn fulltrúa á myndinni. Posted by Picasa

 
 

Brosmildust. Posted by Picasa

 
 

Með Margréti Mist litlu frænku og mömmum í jólaboði (og náttlega í jólaflísinu). Posted by Picasa

 
 

Drottning leikteppisins Posted by Picasa

miðvikudagur, desember 28, 2005

 

Jólagleði og GJAFIRNAR

 

Nú eru jólin aldeilis gengin í garð á fleygiferð...Held að maður verði alltaf jafn hissa á hverju ári hvað þetta er í raun lítil og pen hátíð miðað við fyrirganginn og ofurstressið sem fer á undan henni. Nú er eins og allt sé bara búið, Létt 96.7 farið að spila venjulega væmnu velluna og búið að pakka jólalögunum niður í geymslu. Útsölurnar barasta byrjaðar í verslunarmusterunum og allir löngu búnir að gleyma jólaskapinu. Nína Þorbörg vissi svo sem aldrei af því að það væru jól (og séu enn), fann þó óþyrmilega fyrir því að þurfa að vesenast um í kjól aldrei þessu vant...a.ö.l. var enginn munur. Jú, hún fékk að vaka fram eftir...eða, gerir hún það kannski alltaf??? Verð að segja að við foreldrarnir skemmtum okkur óvenjulega vel í pakkaopnuninni þetta árið, enda fengum við að taka upp fullt af dóti (hefur ekki gerst í háa herrans tíð). Nína Þorbjörg er nú stoltur eigandi heilu húsgagnanna sem gefa frá sér hávaða og blikkandi ljós og titring og allt sem hugvitsömum leikfangaframleiðendum getur dottið í hug. Hún fékk líka hið ýmsasta dót, föt, myndir og bækur og erum við mjög þakklát fyrir! Gaman, gaman! Aðfangadagskvöld skiptist í tvennt hjá okkur þetta árið, vorum fyrri hlutann hjá systur Árna Gríms og seinni hlutann hjá foreldrum mínum. Þetta voru svolítið "geðklofin" jól, fyrri hlutinn einkenndist af hátíðnispenningi hjá börnum Kristínar Árnasystur og seinni hlutinn voru ekta fullorðins jól með portvíni og kaffi. Mjög gaman að njóta þess besta af báðum vígstöðvum. Man ekki til þess að hafa verið svona svakalega spennt yfir pökkunum þegar ég var lítil...var meira í namminu og held ég bara spenntust yfir því...tókst að borða vel yfir mig af konfekti og skila því öllu öfugu upp úr mér aftur. Hef ekki enn getað borðað svona appelsínusúkkulaðislaufur án þess að verða óglatt. Nína Þorbjörg er sem betur fer enn bara í mömmumjólkinni, sem fór örugglega í hátíðarbúning eins og allt annað...a.m.k. vonar maður að smá kanil- og möndlukeymur hafi laumað sér í hana til að gleðja litlu kelluna.
Svo erum við búin að hafa það hrikalega gott í fjölskylduboðum og líka fengið heimsóknir frá hressum vinum. Fengum meira að segja jólasöngvara á dyraþrepið á Þorláksmessu...mættu á svæðið vopnuð pökkum og "Jólasveinum einum og átta". Æ,æ, þurfti bara að sussa á söngvarana því að Nínan var sofandi...fengum þó að njóta lagsins í hvíslútgáfu. Ætlum svo að halda áfram að jólast í kvöld og kannski taka aðeins í nýja Trivial Pursuitið okkar í góðum félagsskap. Sjáum hvort allt vitið sé lekið úr mér með mjólkinni...hef þá a.m.k. ágætis afsökun... Posted by Picasa

föstudagur, desember 23, 2005

 

Gleðileg jól!!!

 

Nína Þorbjörg óskar vinum og velunnurum til sjávar og sveita gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! Þar sem hún hefur hagað sér sérlega vel undanfarið hefur foreldrunum tekist að klára jólaundirbúninginn og allir geta því andað léttar. Það eina sem er eftir er jólabaðið fyrir aðalpíuna á svæðinu, bara svona til að ná af henni skötulyktinni síðan fyrr í dag. Hún ætlar sér stóra hluti á nýju ári (og er strax byrjuð, varð 4 mánaða í dag, geri aðrir betur)...og hlakkar auðvitað til að deila þessu öllu gegnum veraldarvefinn.
Jólakveðjur frá fjölskyldunni á Urðarstígnum, hafið það gott! Posted by Picasa

miðvikudagur, desember 21, 2005

 

JólaNína og ÓjólaMamma

 

Þetta blogg er orðið skuggalega mikið um jólin...enda fátt annað að hugsa um í desember í fæðingarorlofi. Hugsa og hugsa og hugsa um jólin, en verður lítið úr verki. Brrrr...alltaf þetta jólastress, sama þótt maður eigi að heita í "fríi" (ha ha ha, þvílík kaldhæðni). Tókst að flýta verulega fyrir mér með því að panta stóran hluta gjafanna á Amazon og fá síðan hressa póstnáunga (já, barasta eins konar jólasveina) í löngum bunum með kassa fulla af gjöfum meðan ég sit á rassinum og ekkert vesen. Allt annað hefur hins vegar setið á hakanum (afgangurinn af gjöfunum, smákökur, skraut, jólatré, jólakort og þessir smámunir allir). Redda þessu í vikunni, meðfram því að skemmta Nínu Þorbjörgunni minni.
Stelpuskottið hefur hins vegar ekki setið auðum höndum ólíkt mömmunni. Á afrekaskránni þessa dagana er grautarsmakk, veltingur af maga á bak (getur sem sagt rúllað sér núna), prúðmennska í jólahlaðborðum (sjá mynd) og fyrsta veitingahúsaferðin (skellti sér á Jómfrúnna í hádeginu og horfði á mömmu gúffa í sig af jólaplattanum ógurlega). Er orðin svakalega mikill krakki, algjör lengja og dugnaðarforkur sem kann að beita báðum höndum nokkuð markvisst...geri aðrir betur!
Á meðan er ójólalega mamman sem sagt nokkuð löt og hennar helsta afrek að klára hverja jólanammipakkninguna á fætur annarri, áður en hin eiginlegu jól ganga í garð. Er núna búin að stúta tveimur Mackintosh pakkningum og heilu kílói af Nóa-konfekti (fyrir utan vínmolana...sem verða í boði fyrir gesti barasta...endilega kíkið við). Síðast en ekki síst stefnir maður hraðbyri í að fara í jólaköttinn. Var búin að sjá mig fyrir mér mjög móðurlega á aðfangadag, helst í silkikjól með víðu pilsi í stíl við dótturina eins og alvöru stelpumömmu sæmir. Æ æ æ...sjáum til...kannski þetta smelli allt á elleftu stundu.
Kveðja frá Steinunni og Nínu Þorbjörgu ofurbarni Posted by Picasa

laugardagur, desember 17, 2005

 

Endurbætur á síðunni....

 

Já já já....nú stendur fyrir dyrum að flikka upp á síðuna. Það hefur verið í farvatninu hjá Árna Grími að setja inn myndasíðu, enda erum við komin með alveg gommu af myndum eins og þykir sjálfsagt þegar frumburður á í hlut. Veit ekki alveg hvar í farvatninu þessi síða er stödd eins og stendur, en vonandi hún fari að dúkka upp á yfirborðið fljótlega. Eins tókst "forritaranum" mér að setja inn "comment" algjörlega án utanaðkomandi aðstoðar, þannig að endilega látið í ykkur heyra! Alltaf gaman að fá smá viðbrögð á það hápólitíska efni sem hér er að finna. Hver veit hvað fleira ég mun "forrita" á næstunni...
Annars er allt gott að frétta af Urðarstígnum og mikið fjör eins og venjulega. Árni Grímur var að fá í hendurnar mjög myndarlegan rafmagnsbassa frá Þýskalandi nú á dögunum og mikil gleði í húsinu af þessum sökum. Í kjölfarið var gerð tilraun til að pakka Nínu Þorbjörgu ofan í kassann undan fyrrgreindum bassa og senda hana til baka til Þýskalands. Hætta varð við þessi áform, enda ferðamátinn talinn óhentugur...annars hefði örugglega orðið upplifun fyrir stelpuna að kíkja á þýskt jólahald.
Ég sjálf er líka óvenjulega hress (svona fyrir áhugamenn um mína líðan). Hefur loksins skilist að barnið mitt hefur verið "forritað" (af einhverjum miður áhugasömum um mína líðan) til að sofna akkúrat klukkan þrjú á nóttunni og ekki sekúndu fyrr. Kannski ekki svo slæmt í sjálfu sér þegar maður er búinn að sætta sig við það og hættur að berjast gegn hinu óhjákvæmilega. Sannarlega bráðþroska barn hér á ferð. Við Nínan næturgöltrumst því saman í sátt og samlyndi þessa dagana og reynum að gera það besta úr nóttunum (búa til jólakort, setja í uppþvottavél og svona). Nínan er líka búin að finna nýja leið til að halda mömmu sinni upptekinni. Er farin að velta sér á magann í sífellu, en þar sem hún kann ekki að velta til baka þarf líka að bjarga henni í sífellu...mjög góð líkamsrækt (upp úr sófa-velta barni-setjast í sófa-upp úr sófa-velta barni-setjast í sófa). Enda eina líkamsræktin mín akkúrat núna (f.u. að vera eina næringaruppspretta allmyndarlegrar mannveru). Posted by Picasa

fimmtudagur, desember 15, 2005

 

Gömlu fötin mín

 

Er rosalega fegin að það var eitthvað eftir af gömlu barnafötunum mínum uppi á lofti hjá mömmu. Þar sem ég var á Nínu Þorbjargar aldri á hippatímanum er um að ræða ótrúlegustu litasamsetningar, aðallega appelsínugult og brúnt og síðan er köflótt alltaf vinsælt líka. Sem sagt föt sem þú finnur alls ekki úti í búð í dag og eru verulega skemmtileg. Er satt að segja mjög opin fyrir óvenjulegum barnafötum, það er allt svo ljósbleikt þessa stundina fyrir svona stelpukríli (sem er auðvitað líka mjög sætt, segi það ekki). Nínan á núna hippafötin mín og svolítið af svörtu, svo finnst mér strákafötin oft ekkert síðri en stelpufötin. Því miður held ég að þótt stelpur geti verið í strákafötum verði langt í að það öfuga gildi...sem er í raun fáránlegt ef maður hugsar út í það. Af hverju er svona svaaaakalegt að strákur sé í bleiku??? Svona svo maður endi þetta á smávegis hneyksluðum nótum... Posted by Picasa

þriðjudagur, desember 13, 2005

 

Óróinn...kannski ekki alveg réttnefni?



Smá ábending til mæðra framtíðarinnar og fólks í sængurgjafahugleiðingum: Kaupa óróa! Nína Þorbjörg er sem stendur með þrjá óróa í gangi á heimilinu og ekki hægt að komast upp með minna. Óróinn á myndinni er í láni frá Eyjólfi Loga og stendur fyrir 15 mínútum af stanslausu fjöri, dáleiðandi dýr svífa um loftið við undirleik gömlu meistaranna (Mozart-Beethoven-Brahms). Eins og myndin ber með sér er best að njóta óróans með alla anga úti og fullkomlega einbeitt. Á meðan geta mömmur hakkað í sig Cheerio´s eða jafnvel skellt sér í sturtu. Þannig að ef menn vilja vel nærðar og vel lyktandi mömmur í grennd við sig má benda á þetta undratól.
Kveðjur frá Steinunni og N.Þ. (tekur sér Unni Birnu til fyrirmyndar) Posted by Picasa

 

Kammerkór Hafnarfjarðar

 

Nína Þorbjörg fékk ekki að fara með á aðventutónleika Kammerkórs Hafnarfjarðar nú um daginn og var frekar ósátt eins og sést á meðfylgjandi mynd. Við foreldrarnir erum traustir áhangendur kórsins og höfum ekki misst úr tónleika hingað til. Urðum ekki fyrir vonbrigðum á þessarri aðventu frekar en áður, áttum rosalega huggulega kvöldstund í Hafnarfirðinum með uppáhalds kórnum okkar. Á meðan var Nína Þorbjörg í pössun hjá ömmu og afa í Hellulandi, en þar á bæ fer fram ekta fínt klassískt uppeldi þegar daman lætur sjá sig og bara Mozart í boði þannig að hún gat lítið kvartað. Á tónleikunum var jólaleg stemning og Bergþór Pálsson tók lagið með og án kórs. Það sem féll best í kramið hjá mér voru sálmar Þorkels Sigurbjörnssonar, enda er ég mjööög hrifin af honum fyrir og fékk fínustu gæsahúð að þessu sinni (besti mælikvarðinn á gæði). Þess ber að geta að systur Árna Gríms stóðu sig sérstaklega vel þetta kvöld (fæ kannski stig út á þetta...). Einnig ber að hrósa góðu kaffi og nammi í hléi (gulu Machintosh molarnir eru málið þessi jólin).
Hvet fólk til að kynna sér áskriftarmöguleika að tónleikum Kammerkórsins...hugsanlega jólagjöfin í ár??? Posted by Picasa

fimmtudagur, desember 08, 2005

 

Óveður

 

Er orðin áhugamanneskja um veður eftir að Nína Þorbjörg fæddist. Sperri alltaf eyrun þegar veðurfregnir hefjast og fylgist spennt með á netinu. Mjög skemmtileg og ný tilfinning! Ástæðan er sú að dagurinn stendur algjörlega og fellur með því hvort það viðrar til útisvefns í vagni eða ekki. Í dag var einn af þessum dögum þar sem slíkt var ekki mögulegt þrátt fyrir örvæntingarfullar tilraunir af minni hálfu. Setti vagninn út á tröppur í stormi og úrhellisdembu....agalega bjartsýn að sjálfsögðu. Neyddist síðan til að taka þetta allt til baka 15 mínútum síðar þegar það var farið að rigna í gegnum "regnslánna" á vagninum (ekki hönnuð fyrir ekta íslenskar aðstæður og ofurbörn sem sofa úti í öllum veðrum). Reyndi að plata Nínuna til að sofa í vagninum í ganginum og bjó til svona "útihermi" með því að opna glugga og hleypa þannig vindhljóði og smá regnúða inn. Mín er samt klárari en svo að hún átti sig ekki á þessu og var bara hundósátt og kvartaði hástöfum. Endaði með því, eftir mikið rugg og dudduvesen, að ég skellti bara vagninum aftur út í smástund og viti menn...stelpan sofnaði eins og skot! Ótrúlegt hvað það skiptir miklu máli að vera í alvörunni úti í alvöru óveðri! Áður en Nína Þorbjörg kom til sögunnar skildi ég alls ekki hvers vegna íslensk börn eru alltaf sett út í vagn. Í dag er þetta líflínan mín, eini möguleikinn á að hægt sé að mála sig og lesa Moggann og svona án truflunar. Þannig að maður bara kíkir á veðurspánna og ekkert múður, hún er nefnilega líka mjög nákvæm í að spá fyrir um hvernig dagurinn verður hjá okkur mæðgum. Posted by Picasa

 

Haðarstígurinn og almenn miðbæjarhuggulegheit

 

Verð að benda áhugasömum á ágæti Haðarstígsins, þ.e. ef menn vissu ekki af þessu fyrir. Haðarstígurinn er sem sagt pínulítil gata sem liggur eins og göngustígur frá Freyjugötunni niður á Nönnugötu. Við enda þessa fína "göngustígs" (sem þó má keyra á í bílum af mjórri gerðinni) er svo eldhúsglugginn okkar sjáanlegur í öllu sínu veldi. Á þessum árstíma hafa flestir íbúar Haðarstígs skreytt húsnæði sitt hressilega og er mjög glaðlegt að horfa út um eldhúsgluggann og hafa þetta jólaland fyrir augunum. Bendi fólki á að taka Haðarstíginn með í reikninginn í gönguferðum um miðbæinn, hann er vel þess virði! Fólk spyr sig kannski hvað þetta komi Nínu Þorbjörgu við og svarið er að það gerir það eiginlega ekki. Þó er þægilega róandi að kíkja út á jólaljósin þegar hún er í sínu venjulega næturbrölti og mömmur að pirrast.

Annað sem má benda á fyrir miðbæjarferðalanga er Lækjarbrekka síðdegis. Manni hættir til að gleyma tilvist Lækjarbrekku, kannski vegna þess að hún er búin að vera til svo lengi að hún er algjörlega orðin samofin umhverfi sínu. Var á röltinu með Nínu Þorbjörgu, Helgu og Eyjólfi Loga í bænum og kom þá upp sú snilldarhugmynd að kíkja þarna inn og fá sér kaffi og vöfflur. Nína Þorbjörg svaf í vagninum allan tímann og var hægt að hafa góða yfirsýn yfir hana út um gluggann sem borðið okkar var við (var líka í startholunum að hlaupa út eins og elding ef einhverjum skildi detta í hug að stela henni...bara svo fólk haldi ekki að hér sé óabyrg móðir á ferð). Þetta var í einu orði sagt mjög huggulegt eftirmiðdagskaffi og þjónustan barasta æðisleg, þarna voru töfraðir fram alls kyns snilldarhlutir fyrir Eyjólf Loga alveg ókeypis (t.d. stappaður banani, aðalsælgætið). Eftir kaffið var farinn einn hringur í kringum Tjörnina á þrjóskunni einni saman (enda rok og myrkur og kuldi) og síðan strunsað heim. Nína Þorbjörg ákvað að vakna á Laufásveginum, beint fyrir utan bandaríska sendiráðið og sýna þannig vanþóknun sína á því batteríi. Ekki verra að litla eldfjallið sé með réttar skoðanir!

Mynd dagsins er af Eyjólfi Loga kaffifélaga og Þorgeiri pabba hans. Posted by Picasa

þriðjudagur, desember 06, 2005

 

Blómaval Sigtúni

 

Ég trúi því ekki að Blómavalið í Sigtúni sé liðið undir lok...
Ætlaði mér í aðventukransaleiðangur þangað, var jafnvel að velta fyrir mér að kippa með mér einhverri hrikalegri útiskreytingu í leiðinni (svona til að bæta upp fyrir þá staðreynd að það eru tveir sunnudagar í aðventu búnir og enginn aðventukrans enn á heimilinu). Útiskreytingin átti helst að skáka útiskreytingu nágrannans, en hann er búinn að reisa ljósum skreytt hlið fyrir framan tröppurnar hjá sér, síðan er garðurinn allur í stjörnum og ljósum og ég veit ekki hvað og hvað. Það er alltaf flennifín dagsbirta í vagninum hjá Nínu Þorbjörgu, þökk sé skreytingafíkn nágrannans. Sem móður í fæðingarorlofi klæjar mig í skreytinga- og bökunarfingurnar sem aldrei fyrr...og þá meina ég sem ALDREI fyrr. Hef held ég bara aldrei bakað fyrir jólin eftir að hætt var að þvinga mig til þess í matreiðslu í grunnskóla. Í fyrra uppgötvaði ég þó tilbúið deig sem maður þarf bara að skammta á bökunarplötu og skella í ofn. Mikil snilld og bara mjög gott. Hins vegar þykir þetta ekki nógu fínt hér á bæ lengur og stefnt á franskar makkarónur og annað fínerí (er þó ekki orðin nógu örugg með mig í þessu til að leggja í Sörugerð eða piparkökushúsasmíð, a.m.k. ekki um þessi jól).
En talandi um Blómavalið þá skrapp ég sem sagt þangað milli drekkutíma hjá Nínunni og kom að algjörlega tómum kofunum, enda hafði ég ekki hugmynd um að það væri búið að loka. Þar með var sá drekkutímagluggi lokaður og maður heldur bara upp í nýjan leiðangur síðar á nýjan stað þegar nýtt færi gefst. Á meðan verð ég víst að láta mér nægja eina jólalega fyrirbærið á heimilinu sem er þetta glæsilega Amaryllis sem sést á meðfylgjandi mynd. Þess ber þó að geta að myndin er frá því í fyrra og eins og staðan er í dag þá samanstendur Amaryllisið af þremur löngum grænum blöðum...voða jóló! Bólar ekkert á neinu blómi enda mínir vökvunartaktar örugglega ekki til þess fallnir til að fá svona til að blómstra. Posted by Picasa

sunnudagur, desember 04, 2005

 

Drottning skemmtanalífsins

 

Jæja, er komin á eins gott skrið í skemmtanabransanum eins og mögulegt er fyrir móður 3 mánaða barns. Skrapp út BÆÐI á föstudags- og laugardagskvöld og er endurnærð á eftir...rosalega gott að fá smá pásu og auðvitað enn betra að hitta Nínu Þorbjörgu aftur. Ætlaði ekki að hafa mig af stað á föstudeginum, rosa þreytt eftir margar svefnlausar nætur í röð og alls alls ekki að nenna að dúlla mér við að mála mig og velja dress og svoleiðis. Var hins vegar mjög fegin að ég skildi drattast af stað enda ferðinni heitið á rosalegt jólahlaðborð á Hótel Sögu með öðrum unglæknum. Nína Þorbjörg (plús hálf búslóðin sem fylgir henni hvert sem hún fer) fór í pössun hjá ömmu og afa í Hellulandi og var kvöldið hið ánægjulegasta þar á bæ að sögn.
Jólahlaðborðið var sem fyrr segir svakalegt, sérstaklega forréttirnir þar sem næstum allt er hrátt (túnfiskur, lax, nautakjöt, skelfiskur...) og þar með algjörlega á vinsældarlistanum hjá mér. Með þessu var borið fram ekta kampavín úr risaflöskum, alveg eins og það gerist best sko.
Á laugardagskvöldið fór ég síðan í Betupartý í Breiðholtið og skipti svo við Árna Grím sem skrapp á Kaffi Vín (???) að hitta gömlu Árbæjarklíkuna. Á Kaffi Vín (???) fæst víst metri af bjór á spottprís og ekki verra að byrja djammferilinn eftir fæðingu barns á svoleiðis stað. Má segja að kvöldið hafi endað vel hjá Árna Grími, þ.e. á Pizza Pronto eftir misheppnaða tilraun til að fá sér pylsu með nautahakki (alveg það svakalegasta ógeð sem ég get ímyndað mér). Við erum því að komast í gírinn aftur bæði tvö. Ætlum að trappa okkur upp hægt og rólega og hver veit hvort það styttist ekki bara í að Árni Grímur geti tekið sjöuna (þ.e. verið úti til 7). Held samt að "drottningin á heimilinu sem öllu ræður" verði að læra að sofa betur áður en að því kemur... Posted by Picasa

fimmtudagur, desember 01, 2005

 

Músíkölsk?

 

Mér sýnist Nína Þorbjörg ætli að sýna músíkalska takta mjög snemma, a.m.k. finnst henni í einu orði sagt æðislegt þegar pabbi hennar spilar fyrir hana á gítar. Þetta er mjög þægilegt fyrirkomulag, bara hægt að leggja stelpuna á teppi á gólfinu og svo spilar Árni Grímur eins og hann er vanur og allir sáttir. Á meðan starir hún á vinstri höndina á Árna, virðist halda að tónlistin streymi þaðan á einhvern dularfullan hátt. Ef menn taka sér smá pásu eða taka sér umhugsunarfrest við spilamennskuna er mín fljót að gera athugasemd og hotta á spilamanninn...greinilega sérlega taktviss.
Var jafnvel að spekúlera í að finna einhverja leið til að spila fyrir hana sjálf, enda með heil 10 ár af píanónámi að baki (vonandi nóg til að geðjast svona baun). Þarf bara að skaffa píanó eða hljómborð og troða því inn í draslið sem fyrir er í íbúðinni...gæti orðið tæknilega mjög erfitt í framkvæmd og krafist töluverðrar sérþekkingar...
Síðan hefur söngröddin líka verið notuð heilmikið, virðist róa mannskapinn þótt ég sé nú engin Tina Turner. Gróf upp gömlu góðu Vísnabókina sem maður man eftir frá því að maður sjálfur var lítill og er búin að rúlla í gegnum hana nokkrum sinnum. Hef líka reynt að svæfa Nínu Þorbjörgu með því að endurtaka Bí bí og blaka svo oft að jafnvel sérlegum aðdáendum þess lags (ef þeir eru þá til) myndi drepleiðast. Veit ekki hvert metið er, held að það sé a.m.k. 20-30 yfirferðir. Ofsa fjör!
Annars ætlar mamman nú virkilega að fara að bursta rykið af söngröddinni þar sem heyrst hefur að gamli MR-kórinn ætli að reyna að hittast reglulega og syngja saman jólalög í desember. Líst meiriháttar vel á það, enda var óendanlega mikið stuð í kórnum á sínum tíma. Fórum meira að segja á Laugaveginn í miðri jólaösinni vopnuð "Á jólunum er gleði og gaman fúmm fúmm fúmm" og fleiri slögurum og vöktum mikla lukku. Veit ekki hvort það sé hægt að gabba ráðsetta móður í að endurtaka svoleiðis... Posted by Picasa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?