mánudagur, janúar 23, 2006
5 mánaða afreksfrú
Það er "stórafmæli" í uppsiglingu þar sem Nína Þorbjörg verður 5 mánaða í kvöld kl. 20:57 (haldiði að maður gleymi nokkurn tíman þessari tímasetningu...). Hefur afrekað ótrúlegustu hluti á þessum tíma þannig að maður er bara gapandi og á ekki orð yfir hvað tíminn líður hratt. Getur velt sér af og á maga, borðar graut og grænmeti, situr í matarstól (í svona smá stund), fer að sofa án mikils gargs og öskurs, kann að skrækja mjööög hátt, hlær, brosir í myndavélina, horfir á sjónvarp og er farin að þekkja vissa karaktera í smábarnamyndinni sinni, er skelfingu lostin við vissa hluti (t.d. þegar pabbi hennar potar í hana og lætur eins og að hljóðin úr gítarnum komi úr henni sjálfri), er hrifnust af bleiku kertastjökunum í stofuglugganum og egypska ilmvatnsglasinu á baðherberginu (agalega kvenleg), borðar eigin tær (og allt annað sem hún kemst í) o.fl. o.fl. Verður vigtuð og mæld og sprautuð á morgun og munu nýjustu tölur að sjálfsögðu birtast hér á síðunni.
Afrekshorn mömmu (ha ha ha, það er víst líka til): Rétt náði í skottið á Woyzeck í Borgarleikhúsinu um helgina. Fannst mjög gaman, uppfærslan var mögnuð og algjör sjónræn veisla...get ekki sagt að ég hafi náð að ráða í öll tákn og skírskotanir, en naut þess hvað þetta var flott áhorfs. Tónlistin var líka alveg sérstaklega flott, enda ekki við öðru að búast frá Nick Cave. Leikritið sjálft fannst mér hins vegar ekki nógu gott og er svolítið hissa á þessu vali, mikið lagt í umgjörð utan um þunna sögu. Karakterarnir eru flatir og einhliða og manni er nokkuð sama um þá, skilur ekki þeirra aðstæður, af hverju þeir eru þar sem þeir eru og gera það sem þeir gera...