miðvikudagur, janúar 11, 2006

 

Frk. Nína Þorbjörg Rassmusen Árnadóttir Steinsen Smith

 

Finnst að Nína Þorbjörg þurfi að fara að fá einhvern svoldið virðulegan titil eða ættarnafn eða eitthvað svona til að undirstrika stöðu hennar í veröldinni. Það hefur verið að renna upp fyrir mér undanfarna daga að hún stjórnar gjörsamlega ÖLLU á heimilinu og ég og Árni Grímur erum bara hraðskreyðir og viðbragðssnöggir þjónar sem snúumst í kringum hana eins og skopparakringlur. Ekki það að ég myndi vilja hafa þetta einhvern veginn öðruvísi...þetta er bara svolítið hlægilegt. Sem dæmi má nefna að í gær þurfti prinsessan að bíða eftir grautnum á meðan hann kólnaði. Mér varð það á að hafa biðina helst til langa þannig að það varð allt vitlaust. Þegar grauturinn var loksins tilbúinn til neyslu var mín eins og þrumuský og kvartaði og kveinaði. Eina leiðin til að halda henni sæmilega góðri var að skófla í hana grautnum á ofurhraða (og reyna að horfa fram hjá því að helmingurinn fór á föt, andlit hendur og svoleiðis...). Ef ég hægði á skófluninni til að þurrka henni í framan eða eitthvað þá brjálaðist allt. Nóttinni var síðan eytt milli svefns og vöku til að vera tilbúinn að rétta henni dudduna þegar hún missti hana út úr sér. Þetta gerðist svona 30 sinnum og ef "þjónustustúlkan" var of svifasein með snudduna var því ekki tekið vel og hafði langvarandi afleiðingar (strokur og suss og klapp). Held að maður verði að fara að reyna að taka stjórnina aðeins aftur á eigin heimili...þ.e. ef maður hefði hugmynd um hvernig maður á að fara að því....brrrrr.... Posted by Picasa

Comments:
Eins gott að hafa aga á þessu liði, Nína Þorbjörg! :-)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?