þriðjudagur, janúar 17, 2006

 

Helgin

 

Áttum verulega góða helgi þrátt fyrir ógnvænlega snjókomu, skafla og ófærð. Það má segja að mamma hafi gert þetta mögulegt með því að skreppa til Kaupmannahafnar og lána okkur fjórhjóladrifna ofursportbílinn sinn á meðan. Okkar bíll er enn á sumardekkjum og blífastur í margföldum snjómokstursruðningum á Njarðargötunni. Held að hann verði ekkert hreyfanlegur fyrr en "vorleysingarnar" byrja og þá sleppum við auðvitað alveg við að setja á hann naglana. Talandi um að spara sér óþarfa fyrirhöfn! Jæja, við Nína Þorbjörg brunuðum í hádegismat til Þóru bekkjarsystur og Freyju dóttur hennar á föstudaginn. Þar voru nokkrar mömmur og dætur samankomnar og mjög hugguleg og skemmtileg stemning. Fyndið hvað það er endalaust hægt að tala um börn og barnauppeldi, meðgöngu og fæðingu...og auðvitað sleppir maður sér þegar það er enginn á svæðinu sem gæti kafnað úr leiðindum. Um kvöldið var svo skroppið í Laxakvísl í mat og Idol. Áhuginn á Idolinu fer reyndar dvínandi eftir að Ágústa frænka hans Árna Gríms datt út, hefði viljað sjá hana í Smáralindinni, enda topp-söngkona! Á laugardeginum fórum við Helga í Allsherjarinnkaupaleiðangur í Kringluna og var stefnan tekin á að bæta smá líflegheitum í fataskápinn (er alltof svört að sumra mati). Endaði með því að ég keypti mér dökkbláar gallabuxur og svört leðurstígvél, þannig að það er ekkert að létta yfir mér í bráð. Er hins vegar frekar rokkuð í þessu nýja lúkki og finnst það bara svalt, takk. Á sunnudeginum fórum við Ólöf á frönsku kvikmyndahátíðina og sáum Lemming, ég náttlega í nýja lúkkinu sem á vel við svona hátíðir. Ég fílaði síðan Lemming vel, kannski aðallega vegna þess að hún var svo innilega ekki amerísk og þar með fersk (maður verður að fara að hætta að troða endalaust þessum amerísku myndum ofan í kokið á sér). Hugmyndin á bak við myndina var klassísk og einföld og Charlotte Rampling fór á kostum sem svaðaleg kerlingarnorn. Fannst líka mjög gaman að því að yfirleitt þegar maður hélt að maður vissi hvað myndi gerast næst þá stóðst það ekki. Alveg öfugt við það sem maður er vanur.
Jamm, þetta var sem sagt hin besta helgi og mjólkurbirgðirnar aftur búnar úr frystinum...sé þannig fram á að vera meira og minna föst heima þessa vikuna með skvísunni. Posted by Picasa

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?