miðvikudagur, janúar 25, 2006
Loksins nýjar tölur!
Í tilefni af áhyggjum fræðimanna af stöðu íslenskrar tungu hef ég afráðið að gæta vandvirkni í hvívetna við skráningu dagsins. Vona sannarlega að íslensk æska skilji enn afa sína og ömmur og geti notið lesturs Íslendingasagna án þess að fletta hverju einasta orði upp í orðabók.
Við Nína Þorbjörg brugðum okkur á Heilsugæslustöð Miðbæjar í gær af því tilefni að stúlkan náði 5 mánaða aldri þann 23. janúar s.l. Er hefð fyrir því að vigta, mæla og bólusetja ungviði á þessum aldri og er dóttir mín engin undantekning þar á. Stóð hún sig með stakri prýði á meðan hjúkrunarfræðingarnir gerðu mælingarnar og ekki heyrðist frá henni svo mikið sem lítið kvein þegar sprautan var gefin. Sérlega efnileg hnáta eins og áður hefur sýnt sig. Tölur gærdagsins eru eftirfarandi:
Lengd: 67,5 cm
Þyngd: 8.260 g
Höfuðmál: 43 cm
Þegar tölur þessar voru færðar inn á þar til gert graf kom í ljós að um er að ræða þéttholda mannveru með meiru. Er þremur staðalfrávikum fyrir ofan meðalstúlku á sínum aldri.
Verð annars að nota tækifærið svona í lokin og lýsa ánægju minni með eldri kynslóð þessa lands. Nokkrir meðlimir hennar voru í sjónvarpinu í gær að velta fyrir sér slanguryrðum unga fólksins af einlægum áhuga og virðingu. Virtust hafa gaman af þessum orðum og voru spennt að komast að merkingu þeirra (tekin voru fyrir ýmis orð og hugtök eins og "að dissa", "djók", "að hrauna yfir e-n" o.fl.). Það væri óskandi að yngri kynslóðin tæki sér þá eldri til fyrirmyndar og reyndi að vanda mál sitt og auka orðaforðann.
Comments:
<< Home
Til hamingju með áfangann, Nína Þorbjörg. Í dag er Elín Lilja 20 mánaða sem er 4 sinnum þinn aldur:-) Hún er hins vegar smá stúlka bæði á hæð og þyngd, aðeins um 10 kg og tæpir 80 cm. Á þar til gerðum gröfum undir meðallagi þa. það verður spennandi að sjá hvort að þú nærð henni ekki bara fljótlega?
Nína Þorbjörg þakkar fyrir hamingjuóskirnar! Mun borða á sig gat á næstunni til að reyna að ná Elínu Lilju....efast þó um að það náist :) Held líka að sumar mömmur þurfi að fara að massa sig upp ef sum börn halda áfram að þyngjast svona hratt...er farin að síga verulega í nú þegar.
Sendu inn athugasemd
<< Home

