mánudagur, janúar 30, 2006

 

ÚtiNína

 

Erum búin að afreka ýmislegt frá síðustu færslu. Efst á blaði eru útivistarævintýri Nínunnar sem hefur farið um hverfið bæði í burðarpoka og kerru. Hefur barið Urðarstíginn, Nönnugötuna, Fjölnisveginn og Sjafnargötuna augum...kíkti líka aðeins á Landspítalann en virðist ekki muna neitt eftir því þegar hún var þar síðast. Ákváðum að taka svefnráðgjafann á orðinu og viðra Nínuna, en það er liður í því að þreyta hana svo hún sofi betur á nóttunni. Hef ekki séð neinn beinharðan árangur af þessu enn þá, annan en auðvitað skemmtilegheitin sem fylgja því að sýna henni nýja hluti. Finnst einmitt frekar fyndið að hugsa til þess hvað krakkar eru óskrifað blað þegar þau koma í heiminn. Þeim mundi ekki finnast það baun skrýtið þótt mamma væri loðið, grænt skrýmsli með tvö höfuð sem lyktaði af súrkáli og pabbi væri skrýkjandi smáskepna í líki Tinky Winky. Þetta glettilega par myndi fljúga um á myndarlegri gulrót og eiga heimili á sápufroðudiskóteki. Ekkert skrýtið við það. Maður er víst í því hlutverki að kynna heiminn fyrir börnunum og smátt og smátt skilja þau hvernig þetta virkar...hvar í heiminum þau eru og á hvaða tímabili í veraldarsögunni, hverjir passa þau og sinna, hvað er himinn, veður, borg, hús og bíll...skóli, vinna, frí...matur, drykkur, nammi...tónlist, bækur, sjónvarp....og allt hitt. Fyndið að vera ekki með neitt af þessu á hreinu! Heimur Nínu Þorbjargar samanstendur af Urðarstíg og nærliggjandi götum, Laxakvísl, Hellulandi og fleiri heimilum sem hún hefur heimsótt og auðvitað Heilsugæslustöðinni. Fyrir henni er þetta þar með upptalið. Stefni þess vegna á að vera dugleg að sýna henni sem mest og gera hana svolítið hissa. Mjög gaman að upplifa hversdagslega hluti í gegnum augun á barni... Posted by Picasa

Comments:
Það er sko líka mjög skrítið að snerta ýmislegt þegar maður er lítill og þekkir ekki heiminn. Þegar vorar verður til dæmis hrikalega gaman að uppgötva gras, laufblöð, steina svo ekki sé nú minnst á sandkassa og ungbarnarólur!
 
Jójó. Takk fyrir komuna um daginn, þetta var fínasta skemmtun. Eyjólfur Logi er nú bara písl miðað við hana Nínu Fínu Rosastínu. Hann þarf að fara að taka sig á í átinu, það er rétt ;)
 
Já, þetta er nú stærðar-og gæðaflokkur sem við könnumst vel við hér í Kópavoginum. Mæli með lóðalyftingum og járntöku móður ef daman heldur áfram þessari vaxtarrækt. Annars er þetta nú hin flottasta dama og verð ég að segja að mér fyndist hún ekki mega vera gramminu rýrari.. svona eiga börn að vera!
Kramm frá okkur... og nú förum við að sækja Reykjavíkurkortið og rifja upp leiðina á Urðarstíginn á næstunni!
Kv. Addý
p.s. kemurðu á unglæknadaginn??
 
Endilega taka upp kortið og kíkja við! Kem líklegast ekki á unglæknadaginn þar sem Árni Grímur er að vinna...búhú...maður tekur vonandi hressilega við sér síðar þegar dömur eru orðnar enn stærri :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?