þriðjudagur, janúar 03, 2006
Vopnið
Varð mér nýlega út um mjög öflugt vopn í baráttunni um það hvort Nína Þorbjörg sé líkari mér eða Árna Grími. Fyrir utan að vera farin að brosa svakalega í myndavélina er hún líka farin að bregðast við flassinu á alveg sama hátt og ég, eða með því að loka vinstra auganu. Hrikalega fyndið að sjá dóttur sína gera eitthvað nákvæmlega eins og maður sjálfur (þótt þetta sé nú annars frekar hvimleitt og tilgangslaust). Skora á Árna Grím að finna eitthvað álíka sniðugt og kannski bara setja það inn á síðuna??? Maður spyr sig hvort það yrði í fyrsta sinn sem hann setur eitthvað inn á síðuna??? Spurning???
Comments:
<< Home
Búin að lesa í gegnum jólaspekúlasjónir móður í orlofi! Skemmtilegar eins og höfundurinn. Nína er greinilega viljasterk lítil mannvera og stóísk ef marka má svefnframkvæmdir og flugelda-rólegheitin. Sjálf þurfti ég að grafa okkur mæðgur niður í loftvarnarbirgi ( með stórar og litlar peltor eyrnahlífar ; ) )fyrstu áramót Ingu sem varð spindegal við lætin!!
Heyri svo í þér eftir vaktasessssjónina miklu!
kveðja
Addý
Heyri svo í þér eftir vaktasessssjónina miklu!
kveðja
Addý
Hlökkum til að heyra í þér og óskum þér góðs gengis í vaktafjörinu. Bíðum stóískar hér heima á meðan :)
Sendu inn athugasemd
<< Home

