mánudagur, febrúar 06, 2006
Algjört andleysi...
...hefur gripið um sig núna undanfarið. Ekki sérstök ástæða til samt, erum búin að vera á fullu að gera skemmtilega hluti og Nína Þorbjörg hefur líka staðið sig vel í að framkvæma nýjungar. Hlýtur að hafa eitthvað með árstímann að gera, maður virðist oft verða hálf freðinn í janúar og febrúar. Skv. rannsókn nokkurri sem birt var í Mogganum kom fram að leiðinlegasti dagur ársins er einmitt mánudagurinn sem er næstur 24. janúar. Það bara hlaut að vera! A.m.k. er ekki mikið skapandi og skemmtilegt um að vera í mínum haus þessa dagana. Hef reynt að hrista upp í mér með því að skreppa í matarboð, barnaafmæli og í óperuna, takk fyrir. Sá Öskubusku í gær og fannst æðislegt! Vildi óska þess að svona skemmtilegar sýningar gengju almennilega hérna á Íslandi...megum ekki vera of lítið land fyrir óperu! Sýningin var mjög fjörug og glæsilega sungin og leikin. Fannst leikmyndin flott og fagmannleg, ótrúlegt hvað er hægt að framkvæma í þessu pínulitla rými. Með skemmtilegri kvöldum sem ég hef átt í þessu húsi (og þá er bara heilmikið sagt held ég). Nína Þorbjörg fór ekki með í óperuna að þessu sinni heldur var í pössun og í góðri stemningu hjá afa og ömmu í Laxakvísl. Foreldrar mínir, bróðir og kærastan hans yfirgáfu landið fyrir helgina og eru örugglega bara enn þá á leiðinni á áfangastað (Nýja Sjálands). Nú skilur maður hvernig eldri bróður mínum líður allt árið þegar við erum hér en hann einn með sína fjölskyldu hinum megin á hnettinum. Það verður þó að segjast að maður hálf öfundar Nýsjálendingana núna, með fjölskylduna og sumarið allt á einum stað. Öruggleg mikið andríki þar í gangi.

Comments:
<< Home
Takk fyrir kaffið og gómsætu gulrótarkökuna elskurnar, alltaf gaman að hitta ykkur ;) Sjáumst fljótt aftur.
Knús og kram frá Helgu og litla pestarbjálfanum
Sendu inn athugasemd
Knús og kram frá Helgu og litla pestarbjálfanum
<< Home

