fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Ammæli
Nína Þorbjörg er 6 mánaða í dag og fékk bólusetningu í tilefni dagsins...ekki amaleg afmælisgjöf það! Hún var líka vigtuð og mæld að venju og við mælinguna tilkynnti hjúkrunarfræðingurinn að hún væri barasta orðin 66 cm! Sem væri kannski allt í lagi ef hún hefði ekki verið 67,5 cm í 5 mánaða skoðuninni... Mælingin var því endurtekin (með smá auka togi) og hér eru tölurnar:
Lengd: 68 cm
Þyngd: 8900 g
Höfuðmál: 43 cm
Hefur sem sagt eiginlega hvorki lengst né aukið höfuðmál sitt þennan mánuðinn. Maður er nú samt frekar rólegur með þetta...greinilega ekki mjög nákvæmar mælingar þar sem hún virtist hafa minnkað þarna í fyrstu.
Svo verðum við að nota tækifærið og senda fínustu afmæliskveðjur til Sólrúnar Mayu frænku í Nýja Sjálandi sem varð 2 ára í dag. Hlökkum til að fá hana heim í sumar! Meðfylgjandi er mynd af mér og aðalafmælisbarninu á sama tíma í fyrra...þegar Nína Þorbjörg var bara enn þá ófædd og algjört leyndó.

