mánudagur, febrúar 13, 2006
Dagurinn í dag
Nínu Þorbjargar sprell dagsins: Nýjasta nýtt er að Nína Þorbjörg hefur bætt þremur nýjum uppáhöldum í safnið, þ.e. kristallsglösum, Fréttablaðinu (til áts en ekki lestrar) og Latabæ. Á ekki-í-uppáhaldi listann hefur bæst brúða í smábarnamyndinni Baby Beethoven...hún er mjög svipuð öllum hinum brúðunum sem þarna koma við sögu en af einhverjum ástæðum finnst Nínu Þorbjörgu þessi ákveðna brúða bara skelfileg. Annars eru bananar efstir á ekki-í-uppáhaldi listanum.
Asnalegheit dagsins: Að keyra um á Hummer. SKIL það bara ekki. Get reynt að afsaka risajeppa í litlu Þingholtunum (REYNI það), en Hummer....asnó og ekkert annað.
Tilefni dagsins: Í dag höfum við Árni Grímur verið saman í 3 ár og 5 mánuði. Fékk blóm af þessu tilefni og er spriklandi ánægð með það (þótt blóm deyi og hafi engan ákveðinn tilgang þá er samt æðislegt að fá þau, takk fyrir). Ætla að elda tvíréttað, réttur A. mangókjúklingur og réttur B. skúffukaka.
Grill dagsins: Mun grilla Ólöfu vinkonu í kvöld, en hún er í próflestri fyrir amerísku læknaprófin þessa dagana. Er grimmur grillari. Múhúhúúú...

Comments:
<< Home
Þakka gott grill frá grillaranum grimma þetta kvöldið. Hefði reyndar alveg þegið grillaðan magnókjúkling í staðinn en það er ekki á allt kosið, o nei.
Ólöf :)
Ólöf :)
Grillaður mangókjúklingur verður í boði fyrir þá sem rúlla upp amerísku prófunum....þangað til verða bara grillaðir lestrarhestar á svæðinu :)
Sendu inn athugasemd
<< Home