föstudagur, febrúar 03, 2006
Fæðing og meðganga
Þá er bara komið að stóru stundinni; fyrsta pabbablogginu. Ég vil þakka Steinunni fyrir að hafa hitað vel upp fyrir mig, það er ekkert verra en að skrifa á ískalt blogg. Það er engin tilviljun að ég rýf netþögnina núna, í dag er nefnilega stór dagur í sögu þessarar heimasíðu. Enn stærri dagur en dagurinn sem ég reyndi að setja upp teljar (en tókst ekki) og næstum eins stór dagur og þegar Steinunn "forritaði" comment kerfi fyrir síðuna. Í dag er nefnilega fæðingardagur myndasíðunnar! Eftir fimm mánaða meðgöngutíma er hún loks komin í heiminn, var raunar tilbúin fyrir löngu en fyrir óheppilega blöndu pabbans af leti og fullkomnunaráráttu var hún ekki sett upp fyrr en nú. Fullkomnunaráráttan lýsir sér í djúpum pælingum um að samrýma útlit myndasíðunnar við útlit aðalsíðunnar, en letin lýsir sér í því að pælingarnar ná aldrei neitt lengra en að vera pælingar. Myndasíðan er semsagt bara hvít... Nú eru aðeins komnar útvaldar myndir af fæðingunni en fleiri myndir fylgja væntanlega í kjölfarið (ef leti/fullkomnunarárátta leyfir). Síðan má eiga von á fleiri hressum pabbabloggum af sömu gæðum og þetta, Steinunn heldur ykkur heitum á meðan...
Comments:
<< Home
Til hamingju með fyrsta pabbabloggið og myndasíðuna. Naumhyggjan ku vera í tísku þa. þetta er bara flottasta flott ;-)
Til hamingju með flottu myndasíðuna... alltaf gaman að sjá myndir af fyrstu andartökunum.
Knús til ykkar allra,
Svava og Bjartþór Steinn
Knús til ykkar allra,
Svava og Bjartþór Steinn
Til hamingju með allt saman: myndasíðuna, fyrsta pabbabloggið og fyrsta Sjonnakommentið.
Sem einstaklingur með menntun á sviði tölva vil ég bara segja að einfalt vefsíðuútlit fær mitt atkvæði. Naumhyggjan lifi!
Sendu inn athugasemd
Sem einstaklingur með menntun á sviði tölva vil ég bara segja að einfalt vefsíðuútlit fær mitt atkvæði. Naumhyggjan lifi!
<< Home

