laugardagur, febrúar 18, 2006

 

Með allt á hornum mér

 
Úff, hvað ég er eitthvað súr akkúrat núna. Finnst allur heimurinn vera í partýi nema ég (og Árni Grímur, sem er að vinna, nema hvað). Unglæknadagurinn á fullri fart í Þjóðleikhúskjallaranum og liðið á efri hæðinni með tryllt Evróvisjónpartý. Veit ekki hvað hefur eiginlega komið fyrir mig, verð eins og eiturspúandi ófreskja ef ég fæ nasaþefinn af partýi hér í húsinu/götunni. Missi mig alveg og verð útúrpirruð og ergileg...alveg við það að hringja á lögguna eða banka upp á hjá sukkliðinu og hella yfir það fúkyrðum (þarf bara að næla mér í rósóttan, vatteraðan náttslopp og rúllur í hárið fyrst). Er eitthvað svo stressuð að stuðfólkið trufli nætursvefninn hennar Nínu Þorbjargar, sem ekki er neitt spes fyrir. Hún tók upp á því nú aðfaranótt Evróvisjóndagsins (áður konudagsins) að vakna á klukkustundar fresti alla nóttina eins og hún var vön að gera mánuðum saman hér fyrir áramótin. Er með froðu í höfðinu eftir þessa nótt og ekki alveg að nenna að láta dansandi og syngjandi partýlið eyðileggja nætursvefninn aðra nóttina í röð. Sama þótt það kunni að syngja "You´re simply the best" með Tinu Turner. Og eigi flugelda. Enn þá!!!!!!
Svo þorir maður bara varla að segja frá því, en ég er heldur ekkert ofurhress yfir heimsókn nokkurri sem ég á von á á morgun. Get átt svo hriiikalega erfitt með að segja nei að ég veitti tveimur Vottum Jehóva góðfúslegt leyfi til að kíkja við og spjalla við mig núna um helgina. OOOOOOOOHHHHH... Er búin að þykjast ekki vera heima í allan dag og þar sem ekkert bólaði á þeim þarf ég líklegast að þykjast ekki vera heima á morgun líka...suss.
Ljósi punktur dagsins er sá að hið stórkostlega lag Nína var valið besta framlag Íslands til Evróvisjón fyrr og síðar! Við Nínan mín vorum yfir okkur ánægðar með þetta og görguðum saman meðan lagið var flutt.
Halló halló, gullna setningin "niðrí bæ????" var að hljóma af efri hæðinni. Vei!!! Almennilegt fólk þarna á ferð eins og maður vissi nú svo sem. "It´s the final countdown". Takk.
Fróðleiksmoli dagsins: Þegar Betty Crocker gulrótakaka er bökuð skal ekki setja kremið á kökuna þegar hún er nýkomin úr ofninum. Úr því verður hreinn viðbjóður. Posted by Picasa

Comments:
i feel your pain sister! Er heldur ekki í partýi eða á unglæknadegi heldur bara að vinna og vinna. Og í súrri fýlu vegna þess.
 
p.s.meiri krúttmúsin!
 
Hey, ég var heldur ekki í partýi:-) Ég skil þig líka vel að vera á nálum vegna truflunar á nætursvefni barnsins. Þetta getur bara verið meiriháttar vandamál þegar barnið vaknar og heldur að það sé kominn dagur klukkan 2 að nóttu!

Steinunn mín, þú VERÐUR að læra að segja nei. This is no way to live:-)
 
Ég mæli með að þú takir á móti vottunum með goth-málningu framan í þér, klædd svörtum kufli og með fimmhyrnda stjörnu um hálsinn. Það ætti að gera þessa heimsókn áhugaverða.
 
Var búin að gíra mig upp í að segja nei við vottana, íklædd goth-búningi...síðan mættu þeir bara ekkert! Það liggur við að maður sé móðgaður...
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?