fimmtudagur, mars 23, 2006
Frk. Dyntur 2006
Hömm...dóttir mín er ekki beinlínis fyrirsjáanlegasta mannvera sem hefur fæðst. Hún er sem sagt dyntótt eins og ég veit ekki hvað og það fer óeðlilega mikið í mínar fínustu stundum. Sem dæmi má taka að það er ómögulegt að spá um hvort eða hversu mikið af stoðmjólk hún vill drekka á hverjum tíma og aldrei er hægt að taka mið af neinni fyrri reynslu þar sem þetta breytist hraðar en framtíðarspár um íslenska hagkerfið. Í gær drakk hún 160 mL í síðdegissopanum og var enn þá svöng, í dag drakk hún 80 mL og vildi síðan bara borða boðskortið mitt á astma- og ofnæmisdaginn. Þetta leiðir til þess að ég hef hent lítra eftir lítra af stoðmjólkurafgöngum og krónurnar minar rúlla niður um niðurfallið í eldhúsvaskinum. Þá er nú betra að vera bara með barnið á brjósti þar sem þá hefur maður ekki hugmynd um hvað hún drekkur mikið hverju sinni og þess vegna engar áhyggjur heldur. Vandamálið með brjóstagjöfina er hins vegar það að ég hef neyðst til að draga úr henni eftir að barnið hætti að vilja annað brjóstið (dyntir, dyntir...). Er ekki alveg til í að vera með blússandi framleiðslu öðru megin en enga hinum megin...ekki alveg það glæsilegasta að vera með eytt B-skála brjóst og annað D-skála brjóst...eru framleiddir brjóstahaldarar fyrir svoleiðis?
Comments:
<< Home
Held að mörg börn séu dyntótt. Elín mín hefur til dæmis oft leikið þann leikinn að finnast einhver matur bestur í heimi í nokkra daga og svo er hann það bara alls ekki og ekki hægt að koma einni skeið inn fyrir munninn!Sindri Dagur er þægilegri með þetta en hann hafnaði einmitt öðru brjóstinu hjá mér á sínum tíma. 2 mánuðum síðar hafnaði hann hinu ;-)
Nína fína fer óðum stækkandi og bráðum getur þú farið að rökræða við hana og beita þróaðari uppeldisaðferðum:-)
Sendu inn athugasemd
Nína fína fer óðum stækkandi og bráðum getur þú farið að rökræða við hana og beita þróaðari uppeldisaðferðum:-)
<< Home

