fimmtudagur, mars 02, 2006

 

Kaupæði

 
Kaupæði með stóru K-ái hefur gripið um sig hér í húsinu (þ.e. í okkar íbúð). Smelltum okkur á forláta sófa um helgina, skrúfuðum þann gamla í sundur og sendum hann á haugana. Ég er svo tilfinninganæm manneskja að ég binst dauðum hlutum mjög sterkum böndum, ekki síður en þeim lifandi. Á vægast sagt erfitt með að henda og þess vegna er geymslan líka full af þvílíku og öðru eins dótaríi að slíkt hefur varla sést. Gömul bréf frá pennavinkonu minni síðan ég var 11 ára, barnatennur, gamli eldhússloppurinn hennar ömmu, stílabækur úr 7 ára bekk, gamla vekjaraklukkan sem pabbi og mamma áttu (sem hringir af og til í kassanum með svaka látum), ilmvatnsprufur frá sautjánhundruðogsúrkál og svo mætti lengi telja. Þess vegna var mjög erfitt að sjá á eftir gamla sófanum, þótt hann væri orðin sjúskaður og útældur (af Nínu Þorbjörgu), auk þess sem hann var farinn að framleiða einhverja torkennilega fýlu sem engin leið var að losna við. Þar með fór aðalsófinn hans Gísla Marteins í ruslið eftir góða nýtingu. Ég varð hins vegar að loka mig inni á baði á meðan Árni Grímur og sendibílstjórinn fjarlægðu hann, enda um mjög sorglega stund að ræða.
Þetta er nú svo sem ekki það eina sem hefur verið keypt í þessu kaupæði. Er komin með æði fyrir bakkelsi og rúlla Nínu Þorbjörgu með mér út í Bernhöftsbakarí á hverjum degi til að kaupa kaloríubombur. Þetta eru miklar gæðastundir núna í góða veðrinu og algjörlega nauðsynlegt að leyfa barninu að njóta þeirra með manni.
Árni Grímur leggur líka sitt af mörkum í kaupfjörinu, en hans kaup fara aðallega fram í gegnum netið. Þessu fylgir mikið flóð af pökkum, bréfum, tollskýrslum, símhringingum og tilkynningum og hefur gríðarlegur fjöldi aðila komið að þessum kaupum með einhverjum hætti. Þar má telja starfsmenn póstsins, TVG-Zimsen, DHL, USP o.fl. o.fl. Mjög atvinnuskapandi og jákvætt í alla staði.
Framtíðarmúsík er svo að grípa í skottið á bókamarkaðnum í Perlunni og er stefnan að byrgja sig upp af smábarnabókmenntum (og fá sér ís á eftir).
Að lokum má svo minnast lauslega á stóru leynikaupin, en þau eru svo háleynileg að þau verða ekki afhjúpuð að svo stöddu... Mikil spenna er þó í loftinu vegna þessa máls...
Síðan sendum við Nína Þorbjörg fjörkveðjur til Ólafar, fyrrverandi afmælisbarns og núverandi Akureyrings. Óskum þér góðs gengis í sjúkraflugvélinni :) Posted by Picasa

Comments:
Ég er alveg til í að koma og gefa verkfræðilegt álit á nýja sófanum við tækifæri..þú gætir jafnvel skroppið í Bernhöfts á undan ef þig langar;-)
 
Úff, hljómar vel. Nauðsynlegt að kíkja í Bernhöfts sem oftast og auðvitað vonar maður að verkfræðilega álitið komi vel út :)
 
Ég er búin að taka gripinn út og hann gleður bæði auga or þreyttan bossa og því allt sem hægt er að óska sér. Lifi kaupæðið!
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?