þriðjudagur, mars 28, 2006
Kjallarakaup
Jesss...skrifuðum undir kaupsamning í dag og teljumst nú eigendur kjallaraíbúðarinnar sem er undir okkur. Jessss....stóru leynikaupin loksins afstaðin! Þvílíkur munur að vera búinn að eignast svona svefnálmu sem mun þýða mjög svo aukið rými hérna á efri hæðinni. Ímyndið ykkur bara að búa tvö í 70 fm og svo bætist við 1 stk. 3,5 kg kríli með eftirfarandi fylgihluti: Vagn, kerru, bílstól, matarstól, ömmustól (x 2), burðarpoka (x 2), kommóðu, skiptiborð, rimlarúm, leikteppi, púsluteppi (x 2), kúluspilaturn, baðbala + grind, dótakörfu, útifatakörfu, krukkumatarkörfu, of-stóru-fata-kassa, of-litlu-fata-kassa, skiptitösku, heila hillu af smábarnabókum, skúffu af tuskudýrum, óhreinatauskörfu, bleyjur, bleyjupakkara og hillu af handklæðum og taubleyjum. Auk þess er á heimilinu maður með gítara (x 3), harmónikku, gítarmagnara (x 2), rafmagnsbassa, banjó (eða mandólín eða eitthvað), alls konar einhverja míkrófónastanda og nótnastatíf og hljómborðastatíf og hljómborð og pedalaborð og ég veit ekki hvað og hvað.
Okkar fyrsta verk verður að senda Nínu Þorbjörgu öfuga í eigið herbergi ásamt öllum hennar fylgihlutum (það er algjör þrautabraut að komast um íbúðina eins og er og ekki á færi nema al-allsgáðustu einstaklinga). Er farin að æsast mjög upp við tilhugsunina um stelpuherbergi sem er bleikara en bleikt og skreytt hátt og lágt með prinsessum og ballerínum og flugfreyjum og hárgreiðsludömum og bara öllu þessu stereótýpíska. Maður ætti kannski að telja upp á 10 og hugsa þetta svo upp á nýtt. A.m.k. erum við ekkert smávegis ánægð með viðbótina við yfirráðasvæðið okkar og ætlum strax að hefjast handa við framkvæmdir. Hver veit nema á endanum verði bara jafnvel matarboðafært hér á bæ...
Comments:
<< Home
Innilegar hamingjuóskir með nýju viðbótina við heimilið... það er sko ekkert smá dót sem fylgir einu svona kríli og rosa gott að geta bara hent því öllu inn í þeirra eigin herbergi!
Knús,
Svava og Bjartþór Steinn
Knús,
Svava og Bjartþór Steinn
Til hamingju aftur! Þetta verður rosalegur munur fyrir ykkur og af myndinni að dæma er krúttmúsin Nína Þorbjörg líka hæstánægð með framtakið.
Knus og kram,
Erna frænka á ská.
Knus og kram,
Erna frænka á ská.
Til lukku! Þá er bara að skella sér í Einu sinni var eða Laura Asley til að finna eitthvað stelpudúllerí fyrir herbergið:-) Aumingja Ella Lilja fær sko ekki bleikt herbergi fyrr en eftir einhver ár því að hún þarf að deila herbergi með brósa. Samt hægt að setja smá dúllídúll hjá rúminu hennar kannski...
Sendu inn athugasemd
<< Home


