miðvikudagur, mars 08, 2006

 

Smá mont...


Nína Þorbjörg sést hér sitjandi, smávegis árétting ef einhverjir eru vantrúaðir. Við héldum annars áfram í afmælishátíðarhöldum í gær, en að þessu sinni var það amma Þorbjörg sem átti afmæli. Höfðum það mjög huggulegt í Laxakvísl, enda heljarinnar köku- og vöffluhlaðborð á boðstólum. Með köku og kaffibolla í hönd fór síðan fram áætlunargerð fyrir sumarið, en stefnan er tekin á alvöru stórfjölskyldusólarstrandarsumarfrí. Er bara lúmskt ánægð með að hafa góða afsökun til að fara í rólegt frí á sólarströnd, kíkja í vatnsrennibrautagarða og tívolí, í staðinn fyrir að brölta í nepölskum fjallgörðum, hjassast upp perúskar fornmynjar eða þeysast um í síberískum hraðlestum. Ekki það að framangreint sé ekki freistandi...hef líka bara mjög gaman af því að hafa það notalegt undir sólhlíf með bók og bjór. Eða eðalvínglas úr Torres vínkjallaranum.
Svo verður maður að klykkja út með því að deila smávegis reynslu úr menningarlífinu sem manni tekst að grípa af og til:
Match Point: Já. Ég hafði mjög gaman af þessari mynd enda svæsinn Woody Allen aðdáandi. Heyrist menn annað hvort hata þessa mynd eða elska þannig að það er um að gera að sjá hana og mynda sér eigin skoðun.
Sjávarkjallarinn: Jáhá. Æðislegur veitingastaður, alveg á heimsmælikvarða (og fólk veit greinilega af því þar sem það var stappað út úr dyrum). Posted by Picasa

Comments:
Hæhæ frænka! Ætluðum bara að kasta á þig (og m&p) kveðju. Þú ert ekkert smá dugleg, farin að sitja og allt! Svo áttu svo fallegt bros. :)
BKV Siggi, Hildur og Margrét Mist
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?