þriðjudagur, maí 09, 2006

 

Austurvöllur og nágrenni

Við fjölskyldan drifum okkur á Austurvöll x2 í dag, greinilega verðug þess að búa í miðbænum. Byrjuðum á labbitúr með pizzustoppi á Ingólfstorgi og smá túristaspjalli. Mér tókst að laða að mér kanadísk hjón meðan Árni Grímur keypti pizzuna og fræða þau í bak og fyrir um íslenska fæðingarorlofið og þann stórfenglegleika sem því fylgir. Þau ráfuðu orðlaus í burtu og munu aldrei verða söm. Rétt náðum að koma okkur heim þegar Helga og Þorgeir höfðu sambandi af Thorvaldsen þannig að við snérum við í dyrunum. Kvöldmaturinn var að þessu sinni á peysunni á Austurvelli í frábæru yfirlæti. Skiljum samt ekki alveg af hverju íslenskir kaffihúsamógúlar eru ekki löngu búnir að átta sig á töfrum gaslampa, teppa og sólskyggna/regnhlífa. Ef svo væri mundi maður varla snerta á mat öðru vísi en undir "berum" himni.
Svo lenti Nína Þorbjörg í því að aðstandandi hennar reyndist vera s.k. skófíkill (aðstandandi = ég). Hef aldrei lent í þessu áður en á leiðinni í Kron í gær fékk ég þvílíkan tilhlökkunarfiðring að ég ætlaði varla að ná af mér bjánaglottinu áður en ég gekk yfir þröskuldinn á búðinni. Var búin að fara s.k. undirbúningsrúnt þar sem skór eru skoðaðir og svo kannað hvort mann langi nógu mikið í þá til að nenna að mæta aftur á staðinn og kaupa. Var svo spennt í þetta skiptið að ég svaf varla nóttina eftir undirbúningsrúntinn og var handónýt til vinnu sjálfan kaupdaginn. Eftir að skórnir komu í hús hef ég ekki farið úr þeim, enda grænir og úr rússkinni, djúsí....

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?