sunnudagur, júní 04, 2006

 

Carmen

 
Áður en Nína Þorbjörg fæddist var maður búinn að heyra að tónlist væri róandi fyrir smábörn, sérstaklega tónlist sem þau hafa heyrt í móðurkviði. Var rosalega löt á meðgöngunni og nennti ekki að drekkja mér í einhverju sérvöldu róandi efni upp á von og óvon að það hefði einhver áhrif. Hlustaði reyndar frekar mikið á hljómsveitina Air, sem er róandi, en bara af því að mig sjálfa langaði til þess. Hef síðan ekki séð nein sérstök merki þess að tónlist rói Nínuna, fyrr en í dag. Á gamlan disk með óperunni Carmen sem ég hef aldrei spilað, fyrr en í dag. Var á tónleikum með djassistanum Anders Widmark, en hann útsetti Carmen fyrir sitt flotta djasspíanó (meiriháttar tónleikar). Þannig að allt í einu mundi ég eftir henni, en ég var einlægur aðdáandi sem barn (enda algjör "sinfóníunörd" eins og það var kallað í denn). Ég og Nína áttum æðislega stund með Carmen, ég nuddaði Nínuna og við hlustuðum saman í algjörum rólegheitum. Gaman að hitta loksins á eitthvað sem virkar! Eftir að Carmen kláraðist prófaði ég að setja Air á, enda alþekkt dæmi úr bumbunni. Það liðu ekki nema nokkrar sekúndur þangað til Nínan var farin að ormast um og vildi komast eitthvert (eins og alltaf, nema enginn og þá allra síst hún sjálf, veit hvar þetta eitthvert er). Segi nú bara hí á þessa bumbumúsíkspekúlanta. Posted by Picasa

Comments:
Æ krúsímúsin litla. Hún er efnilegur "sinfóníunörd" :-)
 
Tónleikarnir voru svakagóðir!! Gott hjá Nínkunni, hún er greinilega með ágætis tónlistarsmekk, þótt hún sé ekki nógu þroskuð enn til að kunna að meta gæðamúsíkina frá Air.
 
Tómas Helgi hlustaði daglega á Nágranna lagið í móðurkviði í rúma 9 mánuði. Enn (orðinn 5 ára) þagnar hann og starir á sjónvarpið þegar hann heyrir lagið...
 
Kannski ég kvitti fyrir komuna..ég kíki hérna stundum til að sjá myndir af litlu frænku minni sem ég hef ekki enn séð í eigin persónu. Gullfalleg og greinilega svolítill grallari!
kveðja Hrafnhildur frænka hans Árna Gríms
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?