sunnudagur, júní 18, 2006
Áfram Ísland - Áfram Nína Þorbjörg
Var hrikalega ómömmuleg í gær og fór ekkert í bæinn með barnið á 17. júní eins og ALLIR hinir foreldrarnir. Skýli mér á bak við þá staðreynd að Nína Þorbjörg mun ekkert muna eftir þessum viðburði í framtíðinni og var því ekki að missa af neinu. Ég var heldur ekki að missa af neinu...má alveg við því að bíða í 1 ár enn með að spóka mig með kerruna. Fór í staðinn í Laugardalshöllina á Ísland-Svíþjóð og hef held ég ekki skemmt mér eins vel á 17.júní síðan 1700ogsúrkál. Stemningin þarna var ólýsanleg í einu orði sagt...algjör múgæsing og maður öskraði úr sér lungun. Tilfinningirnar sveifuðust út og suður, fyrst var geðshræringin í hámarki þegar þjóðsöngurinn var sunginn (eða vældur af veikum mætti) og maður barasta táraðist, síðan var keppnisandinn í fullum gír þegar maður hvatti strákana áfram á háa c-inu, síðan var maður náttúrlega útúr stressaður þegar illa gekk, öskrandi reiður þegar dómarinn fór hamförum (rak 3 Íslendinga út af í einu) og dansandi hamingjusamur þegar ljóst var að við kæmumst á HM. Sem sagt GEGGJAÐ. Nú er bara að halda áfram að mæta á leiki og öskra og láta illa.
Svo má ekki gleyma að Nína Þorbjörg er aðalhetjan á svæðinu, orðin rosalega dugleg að skríða og stendur upp við allt sem hún nær í. Meðfylgjandi myndir eru pottþétt sönnunargögn. Hún kemst alltaf í fleira og fleira sem ekki má þannig að næst á dagskrá er að byrgja sig upp af alls konar hlutum sem maður hefur lítið nennt að spekúlera í hingað til...einhverjum svona hurðarstoppurum og skúffustoppurum og skápalæsingum og klósettlæsingum og ég veit ekki hvað og hvað. Myndi persónulega a.m.k. vilja komast hjá því að fá mér sundsprett í klósettinu okkar.