sunnudagur, júní 25, 2006
HM-Nína orðin 10 mánaða
Tilkynningaskyldan, góðan daginn.
Nína Þorbjörg fór í 10 mánaða skoðun á dögunum og var mæld og vegin á alla kanta. Orðin 11.250 g, sem skýrir ýmislegt hvað varðar þreytu í upphandleggjum og of þröng barnaföt. Það gleymdist hins vegar alveg að taka eftir öðrum mælistærðum þannig að nú er hún bara X löng og með Y stórt höfuð.
Annars er það helsta að frétta af frúnni að hún er á kafi í HM þessa dagana og fylgist þar grannt með þróun mála. Ef eitthvað virkilega spennandi er að gerast fer hún og smakkar á sjónvarpinu, eins og aðeins hörðustu fótboltaöfgasinnar láta eftir sér.
Sendum síðan stórar og feitar hamingjuóskir til Önnu Freyju með læknistitilinn og Önnu Freyju og Óskars með hið dularfulla leynibrúðkaup!
Comments:
<< Home
Til hamingju með að vera orðin 10 mánaða, Nína fína!
Þú sleppur bara við að lyfta lóðum á meðan, Steinunn. Reyndu að vera dugleg að teygja til að þér líði betur.
Þú sleppur bara við að lyfta lóðum á meðan, Steinunn. Reyndu að vera dugleg að teygja til að þér líði betur.
Takk fyrir hamingjuóskir :)
Maður massast þvílíkt upp á að vesenast með þessa dömu út um allt að mér er að verða nóg um...enda kannski bara með vaxtalag vöðvabúnts eftir nokkra svona mánuði í viðbót.
Maður massast þvílíkt upp á að vesenast með þessa dömu út um allt að mér er að verða nóg um...enda kannski bara með vaxtalag vöðvabúnts eftir nokkra svona mánuði í viðbót.
Áfram Nína!
Þú þarft ekki að fara í ræktina á næstunni. Svo fer að koma að því að þú fáir að hlaupa á eftir henni út um allt ;)
Sendu inn athugasemd
Þú þarft ekki að fara í ræktina á næstunni. Svo fer að koma að því að þú fáir að hlaupa á eftir henni út um allt ;)
<< Home


