sunnudagur, júlí 09, 2006

 

Sunnudagsmorgunn í miðbænum

 
Þingholtin eru æðisleg á sunnudagsmorgnum. Það er algjör kyrrð í loftinu, það sjást varla bílar og hvað þá fólk. Maður á stemninguna bara einn með öllum gömlu húsunum og görðunum og ekki er verra þegar sólin skín eins og í dag. Útlendingarnir eru reyndar á góðu skriði á Laugaveginum í vindjökkunum sínum og göngubuxunum (sem hægt er að breyta í stuttbuxur með því að renna þar til gerðum rennilás). Nína Þorbjörg vekur alltaf lukku hjá útlendingunum, sérstaklega Þjóðverjum því menn þar í landi eru víst almennt hættir að eignast börn. Varð bara að miðla þessu með sunnudagsstemninguna...hef búið í nokkur ár í miðbænum og aldrei upplifað hana fyrr, enda vön að vera sofandi á þessum tíma.
Hömmm...síðan eyddum við Árni Grímur geitungabúinu á meðfylgjandi mynd, alveg ein. Reyndar er þetta augljóslega bú sem rúmar max 2 flugur, en við erum samt frekar sátt við eigið hugrekki. Og, fyrir þá sem fylgjast sérstaklega lítið með, þá er ég orðin 29 ára. Þannig að fólk þarf að fara að hugsa um að hlusta á það sem ég segi og hlíða því... Posted by Picasa

Comments:
Já tók eftir þessu um helgina. Það er frekar fyndið að rölta um bæinn snemma á laugardags- og sunnudagsmorgnum; bara túristar og ,morgunhressir´ foreldrar með ung börn. hehe.
 
Úfffff - þetta býflugnabýli lítur vægast sagt illilega út. Ég hefði ekki þorað að leggja til atlögu við illskeyttar vespur!

Þið eruð hetjur!
 
Einmitt, "morgunhressir" foreldrar...maður er ekki alveg búinn að venjast því að vera þvingaður á fætur kl. 6:30 alla daga vikunnar! Jafnvel þótt maður sé algjör nagli og illskeyttur vespubani...
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?