þriðjudagur, júlí 04, 2006
"Vinnualkarnir" komnir á skrið
Nú erum við Árni Grímur bæði að vinna og amma Þorbjörg og afi Þórður ætla að skipta með sér pössun í júlí. Maður er nú ekkert sérstaklega stressaður vitandi af skvísunni í svona góðum höndum, þannig að þetta er bara lúxuslíf áfram. Finnst eiginlega lúmskt gott að við séum bæði byrjuð að vinna aftur...lífið fór alveg á haus daginn sem Nína Þorbjörg fæddist og er fyrst núna komið í "samt lag"...eða þannig! Fyrstu mánuðina gat ég bara ekki ímyndað mér hvernig það mundi ganga upp að vinna og vera með þessa 300% vinnu heima líka. Það var þegar hún var alltaf drekkandi og svaf ekkert af viti þannig að manni varð nákvæmlega ekkert úr verki. Las ekki blöðin, sá ekki fréttirnar, greip bara eitt og eitt svona sjónvarpsmóment þegar hún var að drekka. Tilhugsunin um að mæta útsofinn í vinnu og hitta dömuna ekki tímunum saman var eiginlega fáránleg. Síðan hefur hún þroskast svo ógnvekjandi hratt að allar forsendur eru breyttar og við bara í vinnu eins og ekkert sé. Verð samt að viðurkenna að maður saknar hennar alveg fullt og er á spani heim úr vinnunni til að komast til hennar. Áður en hún fæddist var ég alltaf á spani heim úr vinnunni "af því bara", núna getur maður ekki hugsað sér að láta aðalmanneskjuna bíða mínútu lengur en þarf. Var einmitt í svoleiðis æðiskasti í gær á heimleið og á brunandi blússi á Nýbílaveginum (eru nýir bílar seldir við Nýbílaveginn af því að hann heitir Nýbílavegur eða heitir hann Nýbílavegur af því að nýir bílar eru seldir við hann?). Verð náttúrlega hálf glórlaus þegar svona stendur á og var farin að stefna öðrum vegfarendum í bráða hættu, komin á rúmlega 70 km hraða á klst. Það var þess vegna eins gott að á sama tíma lá glæsilegur lögreglujeppi í leyni í einhverju trjábeði og varð var við þennan ofsafengna akstur. Æ, æ, var ég bara tekin á bláum ljósum og öllu tilheyrandi og látin fylla út formlegt lagalegt plagg, yfirheyrð og tekin upp á myndband. Löggan var hin ljúfasta, enda kannski eins gott þegar um annan eins stórhættulegan ökuþór er að ræða.
Comments:
<< Home
...eða heitir Nýbílavegur kannski bara Nýbýlavegur - sökum margra nýrra híbýla á þessum slóðum. Pæling.
Steinunn ökuþór á annars afmæli í dag og fær RISAafmælisknús hér með :D Njóttu dagsins!
Steinunn ökuþór á annars afmæli í dag og fær RISAafmælisknús hér með :D Njóttu dagsins!
Sem Kópavogsbúa, í skuggalegri nálægð fyrr títtnefndan veg, er mér ljúft og skylt að tilkynna að vegurinn heitir NýbÝlavegur. Þarna risu víst mörg ný býli í árdaga Kópavogsbæjar. Túrilú
Addý í sumarfríi
Sendu inn athugasemd
Addý í sumarfríi
<< Home

