þriðjudagur, ágúst 08, 2006
Atvikið með þeytarann
Ákvað að vera sérlega góð við Árna Grím á frídegi verslunarmanna og baka glæsilega skúffuköku til að hann hefði eitthvað að hlakka til eftir vaktina. Við Nína Þorbjörg fórum í 10-11 í sérstaka kökubakstursferð og það var mikil spenna í mannskapnum. Það varð úr að hafa þetta svo kallaða "pönnuköku", þ.e. köku bakaða á grillpönnunni okkar...mjög vel heppnað dæmi þótt ég segi sjálf frá. Var eldhress að þeyta eggin á meðan súkkulaðið bráðnaði yfir vatnsbaði og ofninn hitnaði. En, úps, trylltist Nína Þorbjörg bara úr hræðslu yfir hljóðinu í þeytaranum. Og þá meina ég TRYLLTIST. Hef aldrei heyrt hana gráta svona mikið eða vera svona hrædda. Hún varð eldrauð og horinn og tárin streymdu. Þar sem pönnukökugerð var komin vel á veg og rándýr hráefnin í ýmsum fösum undirbúnings var eiginlega ekki aftur snúið. Reyndi að einangra Nínuna frá hávaðanum í öðru herbergi, með uppáhaldsbarnaefnið í sjónvarpinu og snuð í munni. Fljótlega barst tryllingslegur grátur úr stofunni og ég kom að minni liggjandi í gólfinu, baðaða í nýrri sendingu af tárum. Þarna voru eggin hálfþeytt og þannig varð það bara að vera. Restin af kökugerðinni einkenndist af ofsahræðslu Nínu Þorbjargar við eldhúsið í heild sinni og því má segja að maður hafi kastað til höndum. Ég rétt náði að róa hana fyrir svefninn og hafði verulega mikið fyrir því. Ótrúlegt hvað getur komið þessum krílum úr jafnvægi. Eftir þetta leiðindaatvik er hún síðan allt í einu líka orðin hrædd við hárþurrkur og háþrýstidælur. Ætli það verði nokkuð ryksugað á þessu heimili framar? Nei, nei.
Comments:
<< Home
Ella hefur líka verið viðkvæm fyrir hávaðatækjum. Man ekki hvenær það byrjaði en það er á undanhaldi núna - enda hæfir það ekki stórborgarpæjum að vera hræddar við smá hávaða:-)
Gott að hafa góða og gilda afsökun fyrir því að fá sér einhvern til að sjá um heimilisþrifin!!! ;-)
Bið að heilsa öllum á ykkar bæ og gaman að rekast á ykkur mæðgur í dag!
kv Gunna Dóra
Sendu inn athugasemd
Bið að heilsa öllum á ykkar bæ og gaman að rekast á ykkur mæðgur í dag!
kv Gunna Dóra
<< Home


