fimmtudagur, ágúst 24, 2006

 

Ekki lengur núll ára!

 
Nína Þorbjörg varð eins árs í gær, 23. ágúst, og hélt upp á daginn með nánustu fjölskyldu. Sem sagt, ekki lengur núll ára, sem ég held að sé viss léttir fyrir dömuna. Afmælisboðið var mjög huggulegt og skemmtilegt og Nína Þorbjörg fékk frábært veður í takt við hegðun sína s.l. ár. Hún fékk líka fullt af fínum pökkum og sýndi listir sínar með því að "hlaupa" um alla íbúð. Við sungum fyrir hana afmælissönginn og hún söng barasta með! Alltaf jafn músíkölsk! Okkur tókst að koma öllum boðsgestum fyrir í stofunni, en það hlýtur að teljast verkfræðilegt stórafrek. Mjög kaldhæðnislegt að búa við þennan troðning þegar maður á kjallaraíbúð fyrir neðan sig sem er alveg ónotuð og barasta tóm. Jamm, iðnaðarmenn vantar víst um allan bæ, ekki bara hjá okkur, og enginn veit hvert þeir fóru...
Á næsta ári getur maður kannski bara haldið veislu fyrir fjölskyldu og vini samtímis! Ef iðnaðarmennirnir verða komnir þá... Posted by Picasa

Comments:
Bestu hamingjuóskir með 1 árs afmælið skvísa... þetta er sko stórmerkilegur áfangi.

Knús, Svava og Bjartþór Steinn
 
Til hamingju með 1 árs afmælið litla rúsinskí!
kveðja
Addý, Inga og Portúgalsmundur
 
Til lukku með daginn beibí. Alltaf jafnt ekta sæt ;) H og Ey
 
Takk fyrir afmæliskveðjurnar! Við erum mjög hress með áfangann :)
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?