þriðjudagur, ágúst 29, 2006
Innipúkinn 2006
Nína Þorbjörg er búin að vera með hita og kvef í tvo daga og við erum þess vegna bara búnar að hafa það notalegt heima. Hélt að þegar börn væru lasin væru þau meira fyrir að kúra og taka því rólega. Ekki þessi dama. Næ reyndar að halda henni í rúminu til kl. 8, en eftir það byrjar fjörið bara eins og venjulega. Núna er hún að horfa á sjónvarpið pökkuð inn í flísteppi, sem er þvílíkur sigur fyrir mig, fæ hjúkrunargleðifiðring um mig alla.
Svo er maður farinn að telja niður í Spánarferð, en áætluð brottför er 7. september. Bara rétt kíki í vinnuna og er svo farin aftur í frí, þetta er almennilegt! Nína Þorbjörg er komin með fulla skúffu af sumardressum, stuttermabolum, stuttbuxum, pilsum og kjólum. Sem verða notuð í 12 daga og svo bara búið.
Meðmælahornið fær svo að fljóta með vegna þess að ég er í stuði:
1. Rósirnar úr Blómavali í Kringlunni. Keypti 20 stk. á 3þúsund og eitthvað og þær eru æðislegar.
2. The City of Falling Angels eftir John Berendt. Fékk hana í jólagjöf og er að lesa hana núna (ekki alveg sama staðan og þegar maður kláraði allar jólabækurnar í jólafríinu). Mjög skemmtilega skrifuð.
3. Bólusetningar. Svo augljóst finnst manni, samt er fólk alltaf að setja spurningamerki við þær...
Mæli ekki með:
Að baka svo mikið fyrir barnaafmæli að maður borði súkkulaðiköku í hvert mál í viku á eftir.
Comments:
<< Home
Síðbúnar afmæliskveðjur til Nínunnar!
Ónefnd móðir sagði við mig að sér hefði fundist að hún ætti að fá jafnmargar hamingjuóskir og barnið á eins árs afmæli þess...svo mikil voru átökin fram að þeim áfanga, svo ég segi líka: Til hamingju með árangurinn Steinunn og Árni!
Er hins vegar ekki sammála súkkulaðikökudissinu, nauðsynlegt að eiga afganga :)
Sendu inn athugasemd
Ónefnd móðir sagði við mig að sér hefði fundist að hún ætti að fá jafnmargar hamingjuóskir og barnið á eins árs afmæli þess...svo mikil voru átökin fram að þeim áfanga, svo ég segi líka: Til hamingju með árangurinn Steinunn og Árni!
Er hins vegar ekki sammála súkkulaðikökudissinu, nauðsynlegt að eiga afganga :)
<< Home

