sunnudagur, ágúst 20, 2006
Menningarsukk og svínarí
Nína Þorbjörg, Eyjólfur Logi og mömmur skruppu í bæinn í morgun í róló-leiðangur og matarkexát á Austurvelli. Gáfum öndunum og það var ekki vanþörf á eftir ævintýrin sem þær hafa án efa lent í í gær, á "menningar"nótt. Tjörnin var full af sígarettustubbum, rusli og bjórdósum. Á bakkanum stóð einmana háhælaður skór úr rauðu rússkinni, fullur af gruggugri tjarnarslepju. Menningin skein af borginni í morgun...eða þannig.
Nöldur nöldur frá Frk. Var bara heima á menningarnótt. Annað árið í röð. Maður mætir kannski bara niður á Austurvöll á næsta ári með flösku af Opal, kassa af bjór og harmonikku. Í pollagalla, með svona sjálflýsandi hálsfesti og útilegustól með vösum fyrir bjórdósirnar. Verð agalega menningarleg. Slæ í gegn.
Comments:
<< Home
Ég var að muna að skórinn í tjörninni er minn! híhí. Neinei. Var mjög ómennó því ég var svo svakalega menningarleg kvöldið áður. Takk fyrir spjall, kex og brauðkast við tjörnina. Aftur fljótlega!
Helgó og Ey Lo
Sendu inn athugasemd
Helgó og Ey Lo
<< Home

