laugardagur, ágúst 19, 2006

 

Þolrifin

Síðustu dagar eru búnir að vera rússíbani hjá mér og Nínu Þorbjörgu (Árni Grímur hefur að mestu misst af rússíbananum vegna anna í vinnunni). Nína Þorbjörg byrjaði nefnilega í aðlögun hjá dagmömmunni sinni á mánudaginn. Ég hafði hugsað mér að taka þessa viku í aðlögun (eins og tíðkast hjá mörgum) þannig að hún væri farin að vera allan daginn hjá dagmömmunni í næstu viku. Þá gæti ég einbeitt mér að því að skrifa grein sem ég á eftir og þarf helst að klárast fyrir mánaðarmótin. En, það verður að passa sig á að reikna með Faktor X þegar svona áætlanir eru gerðar (Faktor X = Nína Þorbjörg). Faktor X ákvað nefnilega að aðlagast bara ekki neitt. Faktor X grét bara og öskraði út í eitt hjá dagmömmunni og lét sér ekki segjast. Það endaði með því að ég hélt í höndina á Faktor X alla vikuna hjá dagmömmunni, þurrkaði horinn og passaði dudduna. Annars líst okkur ofsalega vel á dagmömmuna og hina krakkana...þetta verður örugglega hið besta mál í vetur þega Faktorinn hefur opnað augu sín gagnvart þeim möguleika að þarna er hægt að hafa það skemmtilegt. Þetta tekur samt óneitanlega á eins og staðan er núna...
Nína Þorbjörg er svo áfram bara ótrúlegur dugnaðarforkur og "skokkar" um allt (er eiginlega komin yfir það að ganga). Leit við í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í morgun og fylgdist með upphituninni og skemmtiskokkinu og sá fólkið koma í mark eftir 10 og 21 km hlaupið. Ætlar sér stóra hluti á þessu sviði á næsta ári, það er alveg augljóst. Sveiflaði sér í takt við tónlistina í upphituninni og baðaði út öllum öngum, söng meira að segja með. Við sáum Ólöfu koma í mark á glæsilegum tíma eftir 10 km hlaupið og Nína Þorbjörg fékk að naga verðlaunapeninginn hennar og smakka blátt Powerade, sem er mjög mjög gott. En, að öllu gamni slepptu held ég að maður verði bara að stefna á 10 km að ári. Er ekki ágætt að setja þessa yfirlýsingu hérna á síðuna?...erfitt að bakka með það. Verð bara að fara að blása rykið af skokkprógramminu mínu sem gleymdist og grófst þegar ég fór að vinna aftur á Lansanum. Skora á Lansann að heita á mig í hlaup á næsta ári...það væri almennileg starfsmannastenfa og mannsauðsstemning.

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?