sunnudagur, september 24, 2006

 
 
Árni Grímur, Þorgerður og Nína Þorbjörg á "penthouse" svölunum sem foreldrar Árna Gríms fengu. Okkar svalir voru engan veginn með eins flott útsýni en hins vegar höfðum við lifandi tónlist á hverju kvöldi í boði "synthesizer"-gaursins á barnum beint fyrir neðan. Æðislegur kaupbætir. "Synthesizer"-gaurinn smalaði að sér gríðarlegum fjölda fólks og pakkfyllti barinn og svo var sungið með fram yfir miðnætti. Dæmigert lagaval:
Viva Espana lagið
Guandala mera (hömm, eða eitthvað svoleiðis)
Macarena
Are you lonesome tonight?
Una paloma blanca
My my MYYYY Delilah
Nína Þorbjörg fékk hreinlega ekki nóg af þessum listræna einstaklingi og áhangendum hans. Æðisleg kvöldskemmtun fyrir smábörn. Posted by Picasa

Comments: Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?