sunnudagur, september 24, 2006
Salou
Komin á ströndina. Ferðin gekk ótrúlega vel, Nína Þorbjörg var eins og innfædd, elskaði sjóinn og sundlaugina og heillaði viðstadda upp úr skónum. Við höfðum það líka gott, drukkum fullt af bjór, urðum ekkert brún, ferðuðumst um allt í spænskum strætó (sem er framvörður skipulags, þjónustu og nákvæmni í heiminum í dag...eða bara ekki), borðuðum hráskinku í kílóatali, sögðum "gracias" og "hola" og skoðuðum Barcelona og Tarragona og turninn í Salou sem er eina fornleifin þar í bæ (þvílíkt svekkelsi að hafa ekki fleiri fornleifar). Okkur tókst líka að týnast í 5 stjörnu hótelahverfinu, lenda í þrumum og eldingum sem hristu hótelið og slógu út rafmagnið, vera boðnar gullkeðjur, sólgleraugu og hass, kaupa endalaust magn af uppblásnu dóti handa Nínu Þorbjörgu (þ.á.m. heila sundlaug), borða lasagna á Old Brown Cow og fara ekki í eina einustu skoðunarferð með íslenska fararstjóranum.
Comments:
<< Home
Hæhæ, takk fyrir innlitið á síðuna okkar... við erum nú búnir að vera algjörir laumulesarar hjá ykkur - Það er svo gaman að lesa um Nínu Þorbjörgu og sjá myndirnar af henni :)
kveðja,
Brynja, Agnar og Ármann Bjarni
www.barnanet.is/armannbjarni/
Sendu inn athugasemd
kveðja,
Brynja, Agnar og Ármann Bjarni
www.barnanet.is/armannbjarni/
<< Home

