föstudagur, október 06, 2006
Gatið í gólfinu
Það er búið að vera allt of mikið að gera undanfarið. Smiðurinn kom og gerði gat á milli íbúðarinnar okkar og kjallarans (okkar). En, stiginn er ekki kominn til landsins svo það er bara svona agalega fínt op undir rúminu okkar...ekki beinlínis það allra mest traustvekjandi! Maður þorir varla að hreyfa sig í rúminu af ótta við að það renni til og pompi niður um gatið. Spennandi tilhugsun...
Svo eru alls konar greinaskrif, fyrirlestrasmíð og próf framundan. Maður hélt að samviskubitið hætti þegar maður útskrifaðist úr skóla og byrjaði að vinna...held nú síður! Nú þarf að læra...OG vinna....OG sjá um heimilið...OG sjá um Nínu Þorbjörgu...OG fara í sturtu OG sofa. Já já, er ekki að sjá hvar plássið fyrir allt þetta á að finnast.
Annars rignir skemmtilegum barneignafréttum úr öllum áttum (þ.a. fleiri og fleiri bætast í hóp fólks með alvarlegt samviskubit á háu stigi). Undanfarið hafa fæðst Ágústa María Ólafsdóttir, Eik Emilsdóttir, Sif Áskelsdóttir og síðast en ekki síst Einar Jónsson. Innilegar hamingjuóskir til foreldranna ef þeir skildu slysast inn á síðuna!

