þriðjudagur, október 17, 2006

 

Nýjasta nýtt frá duglega bloggaranum

Nínan
Nína Þorbjörg er alltaf að verða meiri og meiri karakter. Hún er áfram rosalegur eldhugi og hræðist fátt. Hún hitti t.d. í fyrsta skipti hund í matarboði um daginn og hann var ekki lítill. Mín elti voffa út um allt og reyndi að hanga í feldinum og pota í augun og auðvitað kíkja upp í munninn. Persónulega þori ég bara rétt svo að skjótast að hundum og klappa og skjótast svo í burtu...veit ekki hvaðan þessi veimiltítuskapur er kominn. Finnst líka kettir hrikalega ógnvekjandi...sérstaklega þrífættir kettir. Nína Þorbjörg er svo alltaf að þróa matarsmekkinn og finnst núna ostur það besta sem hún fær. Borðar hann eintóman og hættir aldrei að eigin frumkvæði. Svo er nammi og kökur líka ekta ekta gott (ekki það að hún hafi neitt smakkað það enn þá, hún er svo lítil...hömmm hömmm). Við Nínan erum farnar að kíkja oftar og oftar á leikvöllinn á Laufásborg um helgar til að tékka á stemningunni (erum alltaf einar). Fórum núna um helgina og lentum barasta í rigningu og roki og mín því pollagallavædd frá toppi til táar. Það fyrsta sem hún gerði var að leggjast í aðal drullupollinn á svæðinu og rúlla sér upp úr honum....reiknaði ekki alveg með þessu.... Síðan lá hún á bakinu í drullupollinum og naut þess að horfa upp í himininn og láta rigna framan í sig. Sjálfur var maður alveg búinn að gleyma hvað það var gaman að vera vel klæddur í vondu veðri og ekkert að spá í hvort maður yrði skítugur. Þyrfti að prófa þetta aftur sem fyrst! Hins vegar var ekkert smá vesen að koma henni heim. Hvernig tekur maður barn í fangið sem er drullugt frá toppi til táar og setur það í kerru??? Svör óskast.
Við
Árni Grímur er byrjaður að vinna á röntgendeildinni og skemmtir sér vel. Ég er á minni smitsjúkdómadeild og það er líka gaman þar. Líka alveg hrikalega mikið að gera og stundum smitast maður af niðurgangi. Bíllinn er enn óskoðaður og skítugur, gatið er enn í gólfinu undir rúminu okkar, kjallarinn er enn ómálaður, ég á enga hreina sokka. Er alltaf í pilsi núna. Er að fara í prófið á föstudag og veit ekki hvort ég ætla á djammið á eftir eða bara nota tækifærið og hvíla mig. Erfitt val. Posted by Picasa

Comments:
Maður tekur bara pollóinn af og setur barnið án hans í kerruna, eller hur?
 
vonandi gekk vel í prófinu, góða helgi og sjáumst á mánudaginn.
 
Sendu inn athugasemd



<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?