mánudagur, nóvember 06, 2006
Allt í vitleysu
Ætla að bæta upp fyrir málæðið í síðustu færslu með því að setja inn nokkrar myndir. Annars er bara ekkert að frétta nema að Árni Grímur er búinn að vera með mikla nefstíflu s.l. daga, það er sko ekkert grín. Þeim sem vilja kíkja í heimsókn með blóm eða kökur er bent á að hringja á undan sér til að kanna ástand stíflunnar. Það er verra að lenda óvart á mikilli stíflu.
Svo upplifði ég alveg nýjan hlut í dag. Eða kannski bara tvo. Fór í djúpnæringar...olíusmurningar...nuddolíu...slökunarmeðferð hjá hárgreiðslumeistaranum mínum. Var í 3 klst. á stofunni og Árni Grímur var farinn að hafa áhyggjur af að hann myndi ekki þekkja mig aftur eftir þessa yfirhalningu. Kannski bara sækja glaðhlakkalegan hárgreiðslumeistara í staðinn fyrir mig. Að þessu loknu var ég svo endurnærð í höfðinu að ég ákvað að skella í mig smáslatta af Lýsi í tilefni af því að skammdegið er gengið í garð. Og, það var bara gott á bragðið! Í fyrsta skipti á ævinni... Er greinilega orðin mjög langt leidd af sólar- og næringarskorti.
