laugardagur, nóvember 25, 2006
Ég er hress
Það heyrist lítið í manni þessa dagana...svindlar á blogginu með því að setja bara inn myndir sem koma síðan ekki einu sinni fram. Það er vægast sagt allt í kleinu á síðunni. Vona að enginn hafi kíkt neðst á hana nýlega og séð "flotta" aldursteljarann hennar Nínu Þorbjargar. Ákvað að láta aftur til mín taka í forritun eftir stórkostlegan árangur þegar kommentakerfið var sett inn. Skellti upp þessum teljara og svo reynist þetta bara einn stór lygateljari sem heldur fram bandvitlausum aldri á barninu. Kann ekki að laga þetta þannig að það er bannað að kíkja neðst. Takk.
Ástæða bloggþagnarinnar undanfarið er sú að ég hef verið að bíða eftir tækifæri til að setja inn kvörtunarbréf til einhvers fyrirtækis á síðuna. Maður er ekki maður með mönnum nema hafa lent í ömó þjónustu og vera búinn að skella fram 1 stk. kvörtunarbréfi, a.m.k. er hálfur MR-vinahópurinn í þessum pakka (skiljanlega ef maður les bréfin). Það helsta sem mér dettur í hug að kvarta yfir núna eru allt of litlir vasar á læknasloppunum (læt ekki þvinga mig til að ganga með nördamagapoka í vinnunni), þeirri staðreynd að það er enginn búinn að koma og setja nagladekk undir bílinn okkar og ekki væri úr vegi að kvarta yfir álfinum sem hefur komið netfanginu mínu á lista hjá einhverju fólki sem síðan sendir mér endalausan ruslpóst. Kannski ég skelli mér bara á hlutabréf í kvikasilfursiðnaðnum og leyfi einum aumkunarverðum karli frá Afríku að flytja stórkostlegar fjárhæðir á bankareikninginn minn, bara til að þetta lið láti mig í friði.
Að lokum vil ég koma því á framfæri að ég er ekki orðin forfallið sófadýr sem hugssar bara um fjölskyldu og heimili. Þessu til sönnunar eru eftirfarandi atriði:
Atriði 1: Skrifaði ekki stakan staf um Nínu Þorbjörgu í þetta blogg þótt að hún sé farin að gera fullt nýtt. P.S. Þetta rugl um teljarann telst ekki með.
Atriði 2: Er ekki með heitt vatn í eldhúsvaskinum og get því ekki vaskað upp. Er ánægð með þetta atriði.
Atriði 3: Ætla að drífa mig á dansskemmtun í kvöld þrátt fyrir að vera að vinna frá 9-21 báða dagana um helgina. Ég verð án efa hressasta manneskjan á skemmtuninni.

Comments:
<< Home
Sæl Skotthildur + fjölsk.
Alltaf gaman að sjá mömmu þína taka sprettinn á síðunni. Að sjálfsögðu kíkti ég neðst á síðuna ( á teljarann)... fyrst það var nú á annað borð bannað! Hlakka til að sjá ykkur mæðgur í sunnudagsbrönsinum.
kv.
Addý

Hæ litla duglega hæna og foreldrar.
Auðvitað kíkir maður á teljarann, forvitnin vaknar að heyra að hann sé á svona flippuðum stað. Og aldur barnsins líka mjög flippaður.
Snabbaðar kveðjur frá okkur og takk fyrir boðið. H:Þ:ELÞ

Hömm hömm...þetta var auðvitað bara lúmsk aðferð til að draga athyglina að teljaranum. Finnst ég alveg ágætlega klár að hafa getað sett hann þarna inn, þrátt fyrir augljósa vankanta :)
Sendu inn athugasemd
<< Home