fimmtudagur, nóvember 02, 2006
Nína Þorbjörg
Framfarir...framfarir...framfarir. Mín er að verða betri og betri í að koma á framfæri því sem hún vill og það nýjasta er að láta lesa fyrir sig. Hún á fullt af bókum og nú má maður ekki setjast niður án þess að hún sé mætt með eina. Þegar búið er að lesa mætir hún með næstu, og svo næstu, og svo næstu... Þegar pabbi hennar neitaði að lesa fyrir hana Línu langsokk (sökum skorts á viðeigandi þroska) kom rosalega skeifa og síðan sár og móðgaður grátur. Svo finnst henni enn þá tryllingslega gaman að láta blása sápukúlur fyrir sig. Hlær og skríkir þegar hún sér sápukúluglasið. Hún kann líka að dansa, syngja (aaaa aaaaaaaaaaa) og klifra stiga. Geri aðrir betur.
Við
Það er búið að vera svo brjálað að gera undanfarið að ég er farin að aðhyllast nýja aðferð við matseld. Hér kemur uppskriftin:
"Ég ætla að fá eina máltíð nr.1 og eina nr. 5"
"Hvað viltu drekka með þessu?"
"Coke light með báðum."
"Má bjóða þér kokteilsósu eða tómatsósu með matnum?"
"Nei takk."
"Það verða 1665 kr. í næstu lúgu takk."
Rosalega fljótlegt, tekur enga stund. Í kaupbæti fæ ég síðan almennan slappleika og síþreytu. Smjatt.
Annars ætti ég kannski ekki að vera að væla allt of mikið yfir tímaskorti. Við náðum nefnilega loksins að finna tíma til að láta skoða bílinn í dag. Húrra! Reyndar rúmu ári of seint, en er það ekki bara allt í lagi?
Ég
Alltaf að fullorðnast og jafnframt verða svona almennt hneykslaðri einstaklingur. Geri mér engan veginn grein fyrir hvort það er gott eða slæmt.
Það sem ég þoli ekki þessa dagana:
1) Nauðganir og ofbeldi. Klámvæðing.
Finnst fyrir neðan allt hvað nauðganir, ofbeldi og misnotkun virðast vera algeng hér á landi. Ekki skárra hversu slappar og ömurlegar refsingar liggja við því að brjóta svona af sér. Gefur engan vegin rétt skilaboð til ofbeldismanna. Maður er bara orðinn svo þreyttur á að þetta aukist og aukist, umræðan er endalaus, en EKKERT breytist. Þetta er sjúkt ástand. Ekki bætir úr skák að klámvæðingin, sem er botnlaus, gerir konur að tilfinningalausum hlutum og það þykir bara allt í lagi. Smástelpur lýsa sér sem "hnakkamellum" og "ljóshærðum og löglegum". Veruleg brenglun á ferðinni ef þetta þykir bara eðlilegt.
2) Hvalveiðafjaðrafokið.
Skil ekki hvað gengur að fólki út í heimi að vera að æsa sig svona mikið yfir þessum hvalveiðum, óháð því hvað mönnum annars finnst um þær. Algjör hræsni hjá Bretum að vera að setja sig á háan hest í þessu máli á meðan saklaust fólk er myrt daglega í Írak á þeirra vegum. Á ekki orð.
3) Matvælaverð og einokun.
Hvað kemur til að ég þarf að borga 800 kall fyrir lítið stykki af Parmesan? Eða blæða stórfé á 1 pakka af tómötum? Þá held ég mig frekar við McDonald´s og ríkið fær að endurgreiða mér það sem ég hef borgað í matvælatolla með því að splæsa á mig meðferð við fylgikvillum offitu og sykursýki.
4) Græðgi og hégómi.
Rosalega er maður orðinn þreyttur á lífsgæðakapphlaupinu í Íslendingu, öllum nýju bílunum og "Innlit-Útlit" íbúðunum. Hvernig væri að róa sig aðeins og eyða meiri tíma með fjölskyldunni? Jafnvel í 2 ára gömlu sófasetti staðsettu í herbergi en ekki í "rými".
5) Starfsmannastefna Landspítalans.
Ótrúlegt að menn sem eru reknir úr starfi með miklu offorsi fái ekki að snúa aftur þegar dómstólar hafa dæmt brottreksturinn ólöglegan. Hvað þá þegar enginn annar vinnustaður í landinu getur tekið við starfskraftinum. Ég held að Landspítalinn þurfi að fara að velta fyrir sér hvernig skilaboð hann er að senda til lækna framtíðarinnar. Það er best að sleppa að fara í sérgreinar þar sem eingöngu er hægt að starfa á þessum spítala, það er nefnilega ekki spennandi staða að vera algjörlega upp á stjórnendur hans kominn. Kannski landinn verði bara að mestu að vera án skurðlækna, svæfingarlækna og fleiri slíkra í framtíðinni. Eða skreppa bara til Akraness eða Akureyrar í aðgerðir.
P.S. Væri einhver til í að koma mér að sem næsta Víkverja hjá Mogganum? Finnst ég ógeðslega góður nöldrari.

Comments:
<< Home
Amen! Sjáumst um helgina. Ætla að reyna að standast freistinguna að kaupa bara aktu taktu. Sjáum hvað setur.
Sendu inn athugasemd
<< Home