þriðjudagur, desember 05, 2006
Hjartað og internetið
Ég virðist vera búin að setja inn nóg af myndum af Nínu Þorbjörgu. Punktur. Alla vegana finnst internetinu það...hef verið að reyna og reyna að setja inn nýjar og ferskar myndir þar sem krullurnar njóta sín einstaklega vel, en það ætlar bara ekki að ganga. Það vita svo sem flestir hvernig Nína lítur út, nóg er af myndum, en þetta minnkar aðeins tækifærin mín til að monta mig. Kem með nýtt mont um leið og internetið gefur grænt ljós.
Annars er tilefni þessara skrifa það að ég er að fara að skella mér til New York á ráðstefnu og verð því ekki mjög virk á síðunni á meðan. Bara svo fólk fari ekki að hafa áhyggjur...er nefnilega hreinlega alltaf að skrifa og tjá mig svo það hlýtur einhver að vera fljótur að taka eftir því ef mig vantar í nokkra daga. Það þarf sem sagt ekki að velta sér upp úr því, ætla bara að njóta mín í USA, versla, borða og læra um hjartað. Kem svo með brakandi ferskt tíðindi úr heimi hjartalækninga um leið og internetið leyfir.
Jólaundirbúningurinn er annars í fullum gangi á heimilinu og erfitt að kúpla sig frá honum. Er búin að fara í Ikea-skrýmslið (er alveg hissa að ég sé bara ekki enn þá þar, grenjandi og rammvillt inni í smávörudeildinni, búin að skríða í fósturstellingu í risainnkaupakerrunni). Keypti jóladót þar og líka smá Nínudót (risalaufblað sem við vitum ekkert hvað við eigum að gera við, kameldýr og kolkrabba). Síðan bakaði ég eitt stk. aðventukrans, nánar tiltekið svona fléttubrauðkrans, og skreytti hann með borðum og fiðrildum og kertum auðvitað. Því miður féll kransinn ekki að smekk annars heimilisfólks (var meira svona klessuhringur en fléttuhringur) og þótti ekki einu sinni hæfur til áts. Þannig að hann er á leiðinni í ruslið og maður kominn aftur á byrjunarreit. Ætli maður endi ekki á að vera kominn með krans rétt fyrir síðasta sunnudaginn í aðventu...eins og venjulega.
Að lokum:
1) Orðabók Nínu Þorbjargar:
"D-------aaaa---tt" = Datt
"Akk" = Takk
"Mamamamamamama" = Mamma
"Pababababab" = Pabbi
Svo hefur hún líka sagt kisa ("kis") og hæ hjá dagmömmunni sinni...er greinilega ræðnari þar en heima.
2) Besta búðin í bænum: Nóatún í JL-húsinu (bara svo að það séu einhverjar gagnlegar upplýsingar í þessari færslu).

Comments:
<< Home
ekki gleyma ssss, þýðir ljós. Hefur sagt það 2 síðustu daga þegar hún liggur á stofugólfinu og horfir á jólaseríurnar. Bendir á þær og segir ssss og hlær svo og hlær, yndisleg dúlla
kveðja
Þórunn dagmamma
kveðja
Þórunn dagmamma
Greinilega eitthvað að ganga þarna hjá Þórunni ;) EyLo bendir nefnilega líka á ljós og segir sssss. Kallar tásurnar sínar líka ssss, en með aðeins annarri áherslu!
Góða skemmtun og ég er viss um að kransinn er gómsætur. Ekki hlusta á karlinn (a.k.a. neikvæða Njál).
Góða skemmtun í NY.

Það er amk ákaflega ólíkt þér að gera handverk sem er eitthvað minna en fullkomið, kæra vinkona.
Skemmtu þér vel í NY og komdu með feita færslu á eftir.
ps. ég sakna krullu myndana af NÞÁ
Sendu inn athugasemd