mánudagur, febrúar 27, 2006
Fæða og fjör
Það hefur verið heilmikið fjör á heimilinu frá síðustu færslu. Skruppum á Food and Fun hátíðina að vanda og að þessu sinni var borðað á Vox. Maturinn var nokkuð góður en virtist hins vegar hafa verið settur í gegnum smækkara, allt var í eins konar mýflugumynd. Nína Þorbjörg var á heimavelli og afi Sigurður var hjá henni meðan foreldrar borðuðu míní-matinn. Allt gekk vel þar til frúin var orðin svöng og reynt var að gabba ofan í hana smá stoðmjólk. Stoðmjólk er komin á ekki-í-uppáhaldi listann, sem bara lengist og lengist með degi hverjum. Er orðin frekar örvæntingarfull yfir þessu, var svo mikið að vona að stoðmjólkin gæti komið í staðinn fyrir mína eigin framleiðslu stöku sinnum...dáldið bindandi að þurfa alltaf að vera til staðar á 2-3 klst. fresti dag og nótt. Kvarti kvart. Meira kvart.
Fórum síðan í þrefalt þrítugsafmæli um helgina og skemmtum okkur konunglega. Ákváðum að skipta kvöldinu upp og skiptast á að passa og tjútta. Þetta fyrirkomulag reyndist sérstaklega vel, mun betra en að sitja bæði súr heima.
Síðan má ekki gleyma að hrósa og hampa barninu, til þess er þetta blogg nú einu sinni. Hún er sem sagt bara alveg að fara að sitja eins og glöggir menn hafa líklega séð á meðfylgjandi mynd. Vantar bara rétt herslumuninn. Er viss um að drottningin verður ánægð þegar þessum áfanga er náð. Er orðin svo hundleið á að liggja að það hálfa væri nóg...tekur dagleg dramaköst yfir þessum leiðindum...
fimmtudagur, febrúar 23, 2006
Ammæli
Nína Þorbjörg er 6 mánaða í dag og fékk bólusetningu í tilefni dagsins...ekki amaleg afmælisgjöf það! Hún var líka vigtuð og mæld að venju og við mælinguna tilkynnti hjúkrunarfræðingurinn að hún væri barasta orðin 66 cm! Sem væri kannski allt í lagi ef hún hefði ekki verið 67,5 cm í 5 mánaða skoðuninni... Mælingin var því endurtekin (með smá auka togi) og hér eru tölurnar:
Lengd: 68 cm
Þyngd: 8900 g
Höfuðmál: 43 cm
Hefur sem sagt eiginlega hvorki lengst né aukið höfuðmál sitt þennan mánuðinn. Maður er nú samt frekar rólegur með þetta...greinilega ekki mjög nákvæmar mælingar þar sem hún virtist hafa minnkað þarna í fyrstu.
Svo verðum við að nota tækifærið og senda fínustu afmæliskveðjur til Sólrúnar Mayu frænku í Nýja Sjálandi sem varð 2 ára í dag. Hlökkum til að fá hana heim í sumar! Meðfylgjandi er mynd af mér og aðalafmælisbarninu á sama tíma í fyrra...þegar Nína Þorbjörg var bara enn þá ófædd og algjört leyndó.
þriðjudagur, febrúar 21, 2006
Framfarir, uppgötvanir og alls konar
Manni finnst bara orðið stutt í að Nína Þorbjörg fari að flytja að heiman, hún er orðin eitthvað svo mikil risaskvísa. Sat með mér í morgun og fékk Cheerio´s bita, klædd í svartar "yoga-buxur". Tók sig reyndar til og ældi á "yoga-buxurnar" og svelgdist á Cheerio´sinu...en, þetta er allt að koma. Hún er líka alveg að fara að geta setið sjálf, eyðileggur það bara mest fyrir sjálfri sér með því að reyna alltaf að standa upp (nennir ekki að staldra við á þessu asnalega set-millistigi). Hef gert í því að hrósa henni alveg rosalega þegar hún stendur upp og hún er STOLT af sjálfri sér við þessar aðstæður, takk fyrir. Brosir eyrna á milli.
Nýjustu uppáhöldin: Að horfa á mömmu vaska upp. Dagblöð, plöst og bréf utan af matvælum. Cheerio´s kassar + innihald þeirra. Að garga.
Nýjustu ekki-uppáhöld: Perur, epli og apríkósur (þvílíkt og annað eins ógeð). Eldhúsrúlla (festist við tunguna þegar maður reynir að borða hana).
Meðmæli dagsins: 1. Grasið á Bjarkargötunni. Gengum þarna mæðgurnar um daginn og uppgötvuðum fagurgrænt gras með ekta fínni graslykt og öllu sem góðu grasi tilheyrir. Áfram gras. 2. Lífið í undirgróðrinum. Duttum niður á að horfa á David Attenborough lýsa lífi skordýranna á RÚV í gærkvöldi. Ekki missa af þessu! Í alvöru... 3. Kaffi kaffi kaffi. Eina fíknin sem ég leyfi mér með barn á brjósti (f.u. einstaka lítinn bjór, en það má ekki hafa hátt um það). Fæ rosalegt stuðkikk úr kaffinu og helli núna upp á á hverjum degi (þurfti að byrja á að þurrka rykið af kaffikönnunni eftir laaanga vannýtingu). Kaffinu fylgir líka æðislega heimilislegur ilmur sem fyllir íbúðina. Þessi ilmur + Fréttir á Rás 1 = Heimili.
laugardagur, febrúar 18, 2006
Með allt á hornum mér
Úff, hvað ég er eitthvað súr akkúrat núna. Finnst allur heimurinn vera í partýi nema ég (og Árni Grímur, sem er að vinna, nema hvað). Unglæknadagurinn á fullri fart í Þjóðleikhúskjallaranum og liðið á efri hæðinni með tryllt Evróvisjónpartý. Veit ekki hvað hefur eiginlega komið fyrir mig, verð eins og eiturspúandi ófreskja ef ég fæ nasaþefinn af partýi hér í húsinu/götunni. Missi mig alveg og verð útúrpirruð og ergileg...alveg við það að hringja á lögguna eða banka upp á hjá sukkliðinu og hella yfir það fúkyrðum (þarf bara að næla mér í rósóttan, vatteraðan náttslopp og rúllur í hárið fyrst). Er eitthvað svo stressuð að stuðfólkið trufli nætursvefninn hennar Nínu Þorbjargar, sem ekki er neitt spes fyrir. Hún tók upp á því nú aðfaranótt Evróvisjóndagsins (áður konudagsins) að vakna á klukkustundar fresti alla nóttina eins og hún var vön að gera mánuðum saman hér fyrir áramótin. Er með froðu í höfðinu eftir þessa nótt og ekki alveg að nenna að láta dansandi og syngjandi partýlið eyðileggja nætursvefninn aðra nóttina í röð. Sama þótt það kunni að syngja "You´re simply the best" með Tinu Turner. Og eigi flugelda. Enn þá!!!!!!
Svo þorir maður bara varla að segja frá því, en ég er heldur ekkert ofurhress yfir heimsókn nokkurri sem ég á von á á morgun. Get átt svo hriiikalega erfitt með að segja nei að ég veitti tveimur Vottum Jehóva góðfúslegt leyfi til að kíkja við og spjalla við mig núna um helgina. OOOOOOOOHHHHH... Er búin að þykjast ekki vera heima í allan dag og þar sem ekkert bólaði á þeim þarf ég líklegast að þykjast ekki vera heima á morgun líka...suss.
Ljósi punktur dagsins er sá að hið stórkostlega lag Nína var valið besta framlag Íslands til Evróvisjón fyrr og síðar! Við Nínan mín vorum yfir okkur ánægðar með þetta og görguðum saman meðan lagið var flutt.
Halló halló, gullna setningin "niðrí bæ????" var að hljóma af efri hæðinni. Vei!!! Almennilegt fólk þarna á ferð eins og maður vissi nú svo sem. "It´s the final countdown". Takk.
Fróðleiksmoli dagsins: Þegar Betty Crocker gulrótakaka er bökuð skal ekki setja kremið á kökuna þegar hún er nýkomin úr ofninum. Úr því verður hreinn viðbjóður.
þriðjudagur, febrúar 14, 2006
Enga vesæla rómantík í dag, takk.
Í dag er Valentínusardagurinn og öllum er sama, a.m.k. öllum á þessu heimili. Árni Grímur er vanur að fá veglegar gjafir í tilefni bóndadagsins, en þennan dag látum við alveg eiga sig enda augljóslega fundinn upp af gróðapésum (eins og maaargoft hefur verið bent á). Endilega ekki falla í þá aumu gildru að vera notalegur við makann í dag! Verð reyndar að rifja upp upplifun mína af þessum degi þegar ég var búsett í Chicago, USA. Það var verulega súrrealískt að sjá svörtu harðnaglana í neðanjarðarlestinni (án fordóma, þá bara verður að segjast að í þessu tilfelli voru þeir svörtu mestu naglarnir) sitja prúða og stillta með hjartalaga gasblöðrur og stóra, mjúka, ljósbleika kærleiksbangsa í fanginu á leið að gleðja elskuna sína. Óborganlegt alveg...
Blogg dagsins er sem sagt ekki helgað Valentínó, heldur Jens bróður sem á afmæli í dag. Til hamingju! Sendum ljósbleikar og ofurmjúkar afmæliskveðjur til Nýja Sjálands! Jens virðist a.m.k. hafa verið þægur og góður á árinu ef marka má veðrið...bara enn þá sól og klukkan að verða 18. Takk Jens.
mánudagur, febrúar 13, 2006
Dagurinn í dag
Nínu Þorbjargar sprell dagsins: Nýjasta nýtt er að Nína Þorbjörg hefur bætt þremur nýjum uppáhöldum í safnið, þ.e. kristallsglösum, Fréttablaðinu (til áts en ekki lestrar) og Latabæ. Á ekki-í-uppáhaldi listann hefur bæst brúða í smábarnamyndinni Baby Beethoven...hún er mjög svipuð öllum hinum brúðunum sem þarna koma við sögu en af einhverjum ástæðum finnst Nínu Þorbjörgu þessi ákveðna brúða bara skelfileg. Annars eru bananar efstir á ekki-í-uppáhaldi listanum.
Asnalegheit dagsins: Að keyra um á Hummer. SKIL það bara ekki. Get reynt að afsaka risajeppa í litlu Þingholtunum (REYNI það), en Hummer....asnó og ekkert annað.
Tilefni dagsins: Í dag höfum við Árni Grímur verið saman í 3 ár og 5 mánuði. Fékk blóm af þessu tilefni og er spriklandi ánægð með það (þótt blóm deyi og hafi engan ákveðinn tilgang þá er samt æðislegt að fá þau, takk fyrir). Ætla að elda tvíréttað, réttur A. mangókjúklingur og réttur B. skúffukaka.
Grill dagsins: Mun grilla Ólöfu vinkonu í kvöld, en hún er í próflestri fyrir amerísku læknaprófin þessa dagana. Er grimmur grillari. Múhúhúúú...
Asnalegheit dagsins: Að keyra um á Hummer. SKIL það bara ekki. Get reynt að afsaka risajeppa í litlu Þingholtunum (REYNI það), en Hummer....asnó og ekkert annað.
Tilefni dagsins: Í dag höfum við Árni Grímur verið saman í 3 ár og 5 mánuði. Fékk blóm af þessu tilefni og er spriklandi ánægð með það (þótt blóm deyi og hafi engan ákveðinn tilgang þá er samt æðislegt að fá þau, takk fyrir). Ætla að elda tvíréttað, réttur A. mangókjúklingur og réttur B. skúffukaka.
Grill dagsins: Mun grilla Ólöfu vinkonu í kvöld, en hún er í próflestri fyrir amerísku læknaprófin þessa dagana. Er grimmur grillari. Múhúhúúú...
laugardagur, febrúar 11, 2006
Blogg, bloggsins vegna
Höfum ekkert stórkostlegt fram að færa, langaði bara að láta ljós mitt skína. Dagurinn í dag var einn af þessum góðu dögum þar sem maður fær smá sólarglætu inn í grámygluna sem annars ræður ríkjum. Við Nína Þorbjörg fórum í meiriháttar göngu í Fossvoginum og....það var ekki neins slags úrkoma, ekki rok, ekki frost, ekki skýjað...sem sagt nær óhugsandi aðstæður á þessum tíma árs. Nína Þorbjörg hefur aldrei komist í eins mikið návígi við sólina áður og pírði augun eins og henni væri borgað fyrir það. Annars er hún alltaf með sama svipinn í göngutúrum og heldur honum þangað til hún er tekin úr vagninum. Þetta er svona eiturskarpt, starandi augnaráð og stútur á munni. Ekki möguleiki að hrista upp í henni og fá fram einhver svipbrigði.
Plúsar dagsins: Sólin, lognið og Cloudy bay hvítvín (nýsjálenskur eðalgripur).
Mínus dagsins: Mjög misheppnuð tilraun til að sjóða og stappa rúsínur. Bara hýði og ekkert alvöru innihald. Ekki reyna þetta.
Plúsar dagsins: Sólin, lognið og Cloudy bay hvítvín (nýsjálenskur eðalgripur).
Mínus dagsins: Mjög misheppnuð tilraun til að sjóða og stappa rúsínur. Bara hýði og ekkert alvöru innihald. Ekki reyna þetta.
Heilinn minn (og nokkrar brakandi ferskar myndir)
Finnst að þetta fæðingarorlofsstúss hafi leitt mér fyrir sjónir hvað ég er ánægð með vinnuna mína. Þetta er æðislega kósý og skemmtilegt, en ég held að það hafi mikið með þá staðreynd að gera að ég veit að ég á mér líka starfsferil og vinnu sem ég ætla að mæta aftur í. Ef framundan væri endalaust meiri húsmóðurstemning og kríli eftir kríli eftir kríli eftir kríli...þá veit ég ekki hvort ég væri með alveg sama notalegheitahrollinn. Er meira að segja farin að glugga í gömlu námsbækurnar mínar og fræðitímarit af miklum áhuga, eitthvað sem ég nennti sjaldnast meðan ég var enn að vinna (enda vinnan ferleg orkusuga, þannig er nú bara það). Þegar sest er við lestur spriklar heilinn af kátínu og tendrast allur upp, hvað þá ef rótsterkt kaffi borar sér samtímis inn í kerfið. Aukaverkun þessa heilasprikls er þvílíkt hugmyndaflæði og endurvakning gamalla áhugamála sem ég hélt að væru dáin og grafin. Nú á að redda sér hljómborði og byrja að glamra, teikna og mála, skrifa og hanna og sauma... Þetta síðastnefnda (saumadæmið) kom með mínu nýfengna húsmóðurgeni og vonandi verður eitthvað af þeirri framkvæmd. Kann nákvæmlega EKKERT að sauma og var arfaslök í handavinnu í gaggó (luma á nokkrum "meistaraverkum" frá þeim tíma ef menn eru eitthvað að efast). Langar núna að fara að sauma eigin hönnun og er barasta bjartsýn á að eitthvað verði úr því (held að bjartsýnin komi með Lýsinu á þessum árstíma). Stefni á að flikka upp á Nínu Þorbjörgu, þá tískudrottningu, og er með ýmsar hugmyndir í pokahorninu. Vona að þetta endi ekki hálfklárað upp í skáp eins og flest allt annað handavinnukyns hefur gert hingað til....
föstudagur, febrúar 10, 2006
mánudagur, febrúar 06, 2006
Algjört andleysi...
...hefur gripið um sig núna undanfarið. Ekki sérstök ástæða til samt, erum búin að vera á fullu að gera skemmtilega hluti og Nína Þorbjörg hefur líka staðið sig vel í að framkvæma nýjungar. Hlýtur að hafa eitthvað með árstímann að gera, maður virðist oft verða hálf freðinn í janúar og febrúar. Skv. rannsókn nokkurri sem birt var í Mogganum kom fram að leiðinlegasti dagur ársins er einmitt mánudagurinn sem er næstur 24. janúar. Það bara hlaut að vera! A.m.k. er ekki mikið skapandi og skemmtilegt um að vera í mínum haus þessa dagana. Hef reynt að hrista upp í mér með því að skreppa í matarboð, barnaafmæli og í óperuna, takk fyrir. Sá Öskubusku í gær og fannst æðislegt! Vildi óska þess að svona skemmtilegar sýningar gengju almennilega hérna á Íslandi...megum ekki vera of lítið land fyrir óperu! Sýningin var mjög fjörug og glæsilega sungin og leikin. Fannst leikmyndin flott og fagmannleg, ótrúlegt hvað er hægt að framkvæma í þessu pínulitla rými. Með skemmtilegri kvöldum sem ég hef átt í þessu húsi (og þá er bara heilmikið sagt held ég). Nína Þorbjörg fór ekki með í óperuna að þessu sinni heldur var í pössun og í góðri stemningu hjá afa og ömmu í Laxakvísl. Foreldrar mínir, bróðir og kærastan hans yfirgáfu landið fyrir helgina og eru örugglega bara enn þá á leiðinni á áfangastað (Nýja Sjálands). Nú skilur maður hvernig eldri bróður mínum líður allt árið þegar við erum hér en hann einn með sína fjölskyldu hinum megin á hnettinum. Það verður þó að segjast að maður hálf öfundar Nýsjálendingana núna, með fjölskylduna og sumarið allt á einum stað. Öruggleg mikið andríki þar í gangi.

föstudagur, febrúar 03, 2006
Fæðing og meðganga
Þá er bara komið að stóru stundinni; fyrsta pabbablogginu. Ég vil þakka Steinunni fyrir að hafa hitað vel upp fyrir mig, það er ekkert verra en að skrifa á ískalt blogg. Það er engin tilviljun að ég rýf netþögnina núna, í dag er nefnilega stór dagur í sögu þessarar heimasíðu. Enn stærri dagur en dagurinn sem ég reyndi að setja upp teljar (en tókst ekki) og næstum eins stór dagur og þegar Steinunn "forritaði" comment kerfi fyrir síðuna. Í dag er nefnilega fæðingardagur myndasíðunnar! Eftir fimm mánaða meðgöngutíma er hún loks komin í heiminn, var raunar tilbúin fyrir löngu en fyrir óheppilega blöndu pabbans af leti og fullkomnunaráráttu var hún ekki sett upp fyrr en nú. Fullkomnunaráráttan lýsir sér í djúpum pælingum um að samrýma útlit myndasíðunnar við útlit aðalsíðunnar, en letin lýsir sér í því að pælingarnar ná aldrei neitt lengra en að vera pælingar. Myndasíðan er semsagt bara hvít... Nú eru aðeins komnar útvaldar myndir af fæðingunni en fleiri myndir fylgja væntanlega í kjölfarið (ef leti/fullkomnunarárátta leyfir). Síðan má eiga von á fleiri hressum pabbabloggum af sömu gæðum og þetta, Steinunn heldur ykkur heitum á meðan...
fimmtudagur, febrúar 02, 2006
Þórdís afmælisfrænka
Okkur fjölskylduna langaði að senda Þórdísi stóru frænku innilegar hamingjuóskir með 3 ára afmælið! Vitum ekki hvar við værum án allra fatanna frá Þórdísi, dótsins og auðvitað einlæga áhugans á pínulitlu smáfrænku. Hlökkum til að kíkja í afmælisboð!






