mánudagur, apríl 24, 2006

 

8 mánaða og útsmogin

 
8 mánaða afmælið rann upp í gær og afmælisgjöfin var eitt stk. bólusetning í dag. Sumir eru alveg búnir að læra að þetta er ekki málið og létu hressilega í sér heyra á heilsugæslustöðinni. Nýjustu tölur:
Þyngd: 9600 g
Lengd: 72 cm
Höfuðmál: 44 cm
Svo er frökenin búin að læra fyrsta trixið sitt, þ.e. að vinka bless. Það er alveg ótrúlega fyndið hvað hún er ánægð með sig í hvert skipti og fer að skellihlæja á eftir.
Við og krílanínan erum öll bullandi kvefuð og ég hef síðan dreift þessum eldhressu sýklum í vinnunni í dag. Mjög góður markhópur fyrir sýkla þar á ferð, sjúklingar bráðamóttökunnar og hjúkkurnar sem eru á leiðinni í frí til útlanda saman. Mega búast við að verða nefmælt og rauðeygð innan tíðar...
Smá nöldurhornsinnslag í lokin: Þoli eiginlega ekki hvað íslenskt kvenfólk getur verið í mikilli hjarðmennskustemningu. Sem dæmi má taka að það kom tilkynning í fjölmiðlum í vetur að í sumar yrði málið að vera í hvítum, þröngum gallabuxum. Þótt slíkar gallabuxur hafi talist viðbjóður með ógeði í mörg, mörg ár þá eru skvísur bæjarins farnar að sjást í þessu í hrönnum. Af því að einhver sagði að það væri flott sko.....!!!!???? Posted by Picasa

miðvikudagur, apríl 19, 2006

 

Tennur, krullur o.fl. flott

Sko, maður barasta nýbúinn að vera að vesenast eitthvað yfir tannleysinu í barninu þegar fyrsta tönnin kíkir upp. Henni tókst meira að segja að vera tveimur vikum á undan mér með fyrstu tönnina! Frökenin hafði verið sérlega pirruð í grillpartýi hjá Helgu og Þorgeiri á annan í páskum og það endaði með því að foreldrar urðu að hypja sig heim með litlu pirrdrottninguna....héldum að þetta væri bara enn einn dynturinn, en síðan fannst þessi líka fína framtönn vinstra megin í neðri gómi :)
Þvílík gleði og hamingja sem getur fylgt svona fundi!
Ég lét mitt heldur ekki eftir liggja fyrst Nínan ákvað að fá sér tönn og skellti mér á krullað hár. Fór sem sagt í klippingu um daginn í fyrsta skiptið í mörg ár, var klippt í bak og fyrir og krulluð líka. Er núna með svona nokkuð liðað hár og er verulega sátt við það (og pínu fegin að stóru afró-krullurnar sem ég fór með út af hárgreiðslustofunni hafa aðeins dregið sig í hlé). Leist líka frábærlega á nýju hárgreiðslukonuna og stefni á að vera jafnvel bara reglulegur gestur hjá henni í framtíðinni...það virðist fylgja þessu mömmuhlutverki að vilja hafa hlutina í almennilegum skorðum, a.m.k. í mínu tilfelli.
Fleiri Nínu Þorbjargar fréttir í lokin: Er hætt á brjósti, er byrjuð að borða banana og epli, stalst í páskaegg um páskana og smjattaði vel á því. Ég ætlaði að skrifa langa greinargerð um þann söknuð og þá miklu togstreitu sem fylgir lokum brjóstagjafar...geri það kannski við tækifæri...er viss um að það sé hljómgrunnur fyrir svoleiðis.

 
 
Nína Þorbjörg að máta nýja "stórubarnabílstólinn"...... Posted by Picasa

 
 
.....rosalegt hvað tíminn líður hratt...... Posted by Picasa

sunnudagur, apríl 16, 2006

 

Gleðilega páska!

 
Páskadagur runninn upp og maður á leiðinni að fá sér einhvern morgunmat til þess að páskaeggið fari ekki beint í tóman maga. Nína Þorbjörg fær líka páskaegg...en bara til að skoða í plastinu. Síðan ætla foreldrar að sjá um afganginn. hgkhpgoglihy0h9yulppi (Nína Þorbjörg hafði þetta um málið að segja, augljóslega ekki alveg sátt). Annars eru mikil rólegheit í gangi á þessum bæ, enda litlan með fyrsta hita ævinnar. Hún er búin að vera með þennan hita og tilheyrandi pirring í 3 daga, en annars er ekki að sjá að það ami neitt að henni. Sem sannir læknaforeldrar höfum við samt dælt í hana parasetamóli sem virðist líka gera mjög góða hluti. Ég er enn að pússla mér saman eftir þessa vinnutörn og er búin að njóta þess að skola úr mér þreytunni með bjór og góðum mat í boði foreldra. Höfum varla komist út úr húsi vegna hitans í stelpunni...tókum einn 3 mínútna göngutúr í Nauthólsvík fyrir veikindi, en þurftum frá að hverfa vegna kulda og roks (svaka harka). Síðan höfum við verið að kíkja á heimabíómyndasafnið, sáum Capote og Munich (þ.e. fyrri helminginn, hættum vegna skyndilegrar þreytu). Vonast til að maður fari nú að hrista af sér slenið fljótlega og gangi þá jafnvel svo langt að heyra í vinum og kunningjum...
Þangað til er stefnan tekin á að missa sig í smá súkkulaði trylling...sem er nú ekkert sérstakt tiltökumál fyrir manneskju sem tryllist á þennan hátt nánast daglega. Posted by Picasa

mánudagur, apríl 10, 2006

 

Meiri myndir/Minna blaður

 
Alveg tannlaus enn þá :) Posted by Picasa

 
 
Einhvern veginn komst hún út á gólf... Posted by Picasa

 
 
Að möndla ljósið (sem nú er í henglum). Posted by Picasa

 
 
Kósý á kvöldin. Posted by Picasa

 
 
Ísbjörninn er óneitanlega knúsulegur. Posted by Picasa

laugardagur, apríl 08, 2006

 

Að hrökkva í gang...

Hefur einhver áhuga á myndalausu röfli frá mér? Ef svo er þá ætla ég aðeins að tjá mig...
Er í vinnunni, á helgarvakt, og aldrei þessu vant er bara nógu rólegt til að setjast niður og tölvast. Ég er orðin miklu sprækari, þótt það komi tímabil þar sem ég er alveg frosin og geyspa út í eitt. Já, og geri alls konar hugsunarlausar vitleysur eins og stafsetningarvillurnar í fyrri færslum bera glögglega með sér. Finnst ég samt vera batnandi manneskja í heildina...enda að ná alveg samfelldum 6 klst. í svefn á hverri nóttu. Aldrei hefði ég trúað að mér mundi einhvern tíman finnast það lúxus!
Nína Þorbjörg er hægt og rólega að reyna að venjast því að drekka ekki á nóttunni og hefur verið mun meðfærilegri heldur en fyrstu nóttina (sem BETUR fer...annars hefði maður nú orðið að íhuga alvarlega að endurhugsa þessi vinnumál alveg frá grunni). Hún sýnir samt svakalegan aðskilnaðarkvíða og er alltaf ofsalega glöð að sjá mig þegar ég kem heim á daginn. Svo má maður ekki bregða sér í næsta herbergi þá er hún farin að hágráta. Svolítið erfitt að horfa upp á þetta...en hún hefur pabba sinn nú! Ég er síðan sem fyrr segir að vinna frá 9-21 í dag og á morgun, þannig að ég hitti hana rétt til að kyssa hana góða nótt á kvöldin. Búhúhú....hefði ekki trúað því fyrir fram hvað maður getur saknað þessara kríla mikið!

þriðjudagur, apríl 04, 2006

 

Blendnar tilfinningar

Úff, púff, það er aldeilis búið að snúa veröldinni á hvolf síðan í síðustu færslu. Byrjaði nefnilega í vinnunni á mánudaginn og held fast í þá von að fólk segi satt með það að fyrsta vikan í vinnunni sé erfiðust...a.m.k. er ég ekki alveg nógu hress með þá tilhugsun að vera snargrilluð í hausnum eitthvað mikið lengur.
Þetta byrjaði þannig að Árni Grímur var á næturvakt fram á mánudagsmorgun og mætti mér á leiðinni út úr dyrunum...ekki beinlínis svefnbesta nóttin fyrir vinnutörn, ein með Nínu Þorbjörgu. Síðan ákváðum við að fara að taka út næturdrykkjuna hjá henni þar sem hún er enn að drekka x 1-3 á nóttu, sem er svolítið snúið þegar maður er í fullri vinnu. Síðasta nótt var sem sagt drykkjulaus hjá frúnni og fór það vægast sagt ekki vel í hana. Ég "svaf" í sófanum og hlustaði á Árna Grím reyna að hugga barnið alla nóttina. Þetta er held ég með því ömurlegasta sem ég hef staðið í...vorkenndi henni svo rosalega. Oj, hvað maður er vondur. Fór svo í vinnuna í morgun með ferlegt samviskubit og alveg troðfull af mjólk (þ.e. hægra megin). Vinnudagurinn var alveg trylltur og enginn tími til að setjast niður í 5 mín., hvað þá skella sér í smá brjóstapumpustemningu. Var orðin fáránleg í lok dags, alveg búin á því eftir svefnlausar nætur og með eitt risabrjóst og annað aðeins minna... Held að fólk hafi alveg verið farið að sjá að þetta var ekki eðlilegt. Svo kemur maður heim eins og undin tuska og enn að deyja úr samviskubiti yfir þessari hrikalegu meðferð á barninu og þeirri almennu vanrækslu sem hún má þola af minni hendi.
Já, smávegis pústpóstur. Og óbeislað nöldur.
Að lokum skora ég á Árna Grím að fara að munda myndavélina og lyklaborðið og halda upplýsingastreyminu gangandi....maður segir svo kannski eitthvað svakalega gáfulegt af og til...
Annars er alveg ágætt að vera kominn í vinnuna, a.m.k. ekki alslæmt.

laugardagur, apríl 01, 2006

 

Aðalstuðið: Laugardagskvöld í Þingholtunum

 
Held að ég sé orðin að hinni örgustu húsmóður. A.m.k kom það upp í hugann núna í kvöld, þ.e. kl. 21:35 á laugardagskvöldi þar sem ég er stödd við uppvask í eldhúsinu undir glymjandi stuðtónum Bylgjunnar. Hvernig gat þetta gerst svona hratt? Hélt að ég ætti nokkur ár eftir í þennan pakka...
Áhyggjufullir geta þó glatt sig við þá staðreynd að þessi Bylgjuhlustandi, uppvaskandi húsfreyja á kaldan bjór í ísskápnum og Desperate Housewives í tölvunni (OK, kannski engin svakaleg huggun, en maður reynir). Posted by Picasa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?