sunnudagur, júní 25, 2006
HM-Nína orðin 10 mánaða
Tilkynningaskyldan, góðan daginn.
Nína Þorbjörg fór í 10 mánaða skoðun á dögunum og var mæld og vegin á alla kanta. Orðin 11.250 g, sem skýrir ýmislegt hvað varðar þreytu í upphandleggjum og of þröng barnaföt. Það gleymdist hins vegar alveg að taka eftir öðrum mælistærðum þannig að nú er hún bara X löng og með Y stórt höfuð.
Annars er það helsta að frétta af frúnni að hún er á kafi í HM þessa dagana og fylgist þar grannt með þróun mála. Ef eitthvað virkilega spennandi er að gerast fer hún og smakkar á sjónvarpinu, eins og aðeins hörðustu fótboltaöfgasinnar láta eftir sér.
Sendum síðan stórar og feitar hamingjuóskir til Önnu Freyju með læknistitilinn og Önnu Freyju og Óskars með hið dularfulla leynibrúðkaup!
sunnudagur, júní 18, 2006
Áfram Ísland - Áfram Nína Þorbjörg
Var hrikalega ómömmuleg í gær og fór ekkert í bæinn með barnið á 17. júní eins og ALLIR hinir foreldrarnir. Skýli mér á bak við þá staðreynd að Nína Þorbjörg mun ekkert muna eftir þessum viðburði í framtíðinni og var því ekki að missa af neinu. Ég var heldur ekki að missa af neinu...má alveg við því að bíða í 1 ár enn með að spóka mig með kerruna. Fór í staðinn í Laugardalshöllina á Ísland-Svíþjóð og hef held ég ekki skemmt mér eins vel á 17.júní síðan 1700ogsúrkál. Stemningin þarna var ólýsanleg í einu orði sagt...algjör múgæsing og maður öskraði úr sér lungun. Tilfinningirnar sveifuðust út og suður, fyrst var geðshræringin í hámarki þegar þjóðsöngurinn var sunginn (eða vældur af veikum mætti) og maður barasta táraðist, síðan var keppnisandinn í fullum gír þegar maður hvatti strákana áfram á háa c-inu, síðan var maður náttúrlega útúr stressaður þegar illa gekk, öskrandi reiður þegar dómarinn fór hamförum (rak 3 Íslendinga út af í einu) og dansandi hamingjusamur þegar ljóst var að við kæmumst á HM. Sem sagt GEGGJAÐ. Nú er bara að halda áfram að mæta á leiki og öskra og láta illa.
Svo má ekki gleyma að Nína Þorbjörg er aðalhetjan á svæðinu, orðin rosalega dugleg að skríða og stendur upp við allt sem hún nær í. Meðfylgjandi myndir eru pottþétt sönnunargögn. Hún kemst alltaf í fleira og fleira sem ekki má þannig að næst á dagskrá er að byrgja sig upp af alls konar hlutum sem maður hefur lítið nennt að spekúlera í hingað til...einhverjum svona hurðarstoppurum og skúffustoppurum og skápalæsingum og klósettlæsingum og ég veit ekki hvað og hvað. Myndi persónulega a.m.k. vilja komast hjá því að fá mér sundsprett í klósettinu okkar.
Svo má ekki gleyma að Nína Þorbjörg er aðalhetjan á svæðinu, orðin rosalega dugleg að skríða og stendur upp við allt sem hún nær í. Meðfylgjandi myndir eru pottþétt sönnunargögn. Hún kemst alltaf í fleira og fleira sem ekki má þannig að næst á dagskrá er að byrgja sig upp af alls konar hlutum sem maður hefur lítið nennt að spekúlera í hingað til...einhverjum svona hurðarstoppurum og skúffustoppurum og skápalæsingum og klósettlæsingum og ég veit ekki hvað og hvað. Myndi persónulega a.m.k. vilja komast hjá því að fá mér sundsprett í klósettinu okkar.
sunnudagur, júní 04, 2006
Carmen
Áður en Nína Þorbjörg fæddist var maður búinn að heyra að tónlist væri róandi fyrir smábörn, sérstaklega tónlist sem þau hafa heyrt í móðurkviði. Var rosalega löt á meðgöngunni og nennti ekki að drekkja mér í einhverju sérvöldu róandi efni upp á von og óvon að það hefði einhver áhrif. Hlustaði reyndar frekar mikið á hljómsveitina Air, sem er róandi, en bara af því að mig sjálfa langaði til þess. Hef síðan ekki séð nein sérstök merki þess að tónlist rói Nínuna, fyrr en í dag. Á gamlan disk með óperunni Carmen sem ég hef aldrei spilað, fyrr en í dag. Var á tónleikum með djassistanum Anders Widmark, en hann útsetti Carmen fyrir sitt flotta djasspíanó (meiriháttar tónleikar). Þannig að allt í einu mundi ég eftir henni, en ég var einlægur aðdáandi sem barn (enda algjör "sinfóníunörd" eins og það var kallað í denn). Ég og Nína áttum æðislega stund með Carmen, ég nuddaði Nínuna og við hlustuðum saman í algjörum rólegheitum. Gaman að hitta loksins á eitthvað sem virkar! Eftir að Carmen kláraðist prófaði ég að setja Air á, enda alþekkt dæmi úr bumbunni. Það liðu ekki nema nokkrar sekúndur þangað til Nínan var farin að ormast um og vildi komast eitthvert (eins og alltaf, nema enginn og þá allra síst hún sjálf, veit hvar þetta eitthvert er). Segi nú bara hí á þessa bumbumúsíkspekúlanta.




