þriðjudagur, ágúst 29, 2006

 

Innipúkinn 2006

 
Nína Þorbjörg er búin að vera með hita og kvef í tvo daga og við erum þess vegna bara búnar að hafa það notalegt heima. Hélt að þegar börn væru lasin væru þau meira fyrir að kúra og taka því rólega. Ekki þessi dama. Næ reyndar að halda henni í rúminu til kl. 8, en eftir það byrjar fjörið bara eins og venjulega. Núna er hún að horfa á sjónvarpið pökkuð inn í flísteppi, sem er þvílíkur sigur fyrir mig, fæ hjúkrunargleðifiðring um mig alla.
Svo er maður farinn að telja niður í Spánarferð, en áætluð brottför er 7. september. Bara rétt kíki í vinnuna og er svo farin aftur í frí, þetta er almennilegt! Nína Þorbjörg er komin með fulla skúffu af sumardressum, stuttermabolum, stuttbuxum, pilsum og kjólum. Sem verða notuð í 12 daga og svo bara búið.
Meðmælahornið fær svo að fljóta með vegna þess að ég er í stuði:
1. Rósirnar úr Blómavali í Kringlunni. Keypti 20 stk. á 3þúsund og eitthvað og þær eru æðislegar.
2. The City of Falling Angels eftir John Berendt. Fékk hana í jólagjöf og er að lesa hana núna (ekki alveg sama staðan og þegar maður kláraði allar jólabækurnar í jólafríinu). Mjög skemmtilega skrifuð.
3. Bólusetningar. Svo augljóst finnst manni, samt er fólk alltaf að setja spurningamerki við þær...
Mæli ekki með:
Að baka svo mikið fyrir barnaafmæli að maður borði súkkulaðiköku í hvert mál í viku á eftir. Posted by Picasa

fimmtudagur, ágúst 24, 2006

 

Ekki lengur núll ára!

 
Nína Þorbjörg varð eins árs í gær, 23. ágúst, og hélt upp á daginn með nánustu fjölskyldu. Sem sagt, ekki lengur núll ára, sem ég held að sé viss léttir fyrir dömuna. Afmælisboðið var mjög huggulegt og skemmtilegt og Nína Þorbjörg fékk frábært veður í takt við hegðun sína s.l. ár. Hún fékk líka fullt af fínum pökkum og sýndi listir sínar með því að "hlaupa" um alla íbúð. Við sungum fyrir hana afmælissönginn og hún söng barasta með! Alltaf jafn músíkölsk! Okkur tókst að koma öllum boðsgestum fyrir í stofunni, en það hlýtur að teljast verkfræðilegt stórafrek. Mjög kaldhæðnislegt að búa við þennan troðning þegar maður á kjallaraíbúð fyrir neðan sig sem er alveg ónotuð og barasta tóm. Jamm, iðnaðarmenn vantar víst um allan bæ, ekki bara hjá okkur, og enginn veit hvert þeir fóru...
Á næsta ári getur maður kannski bara haldið veislu fyrir fjölskyldu og vini samtímis! Ef iðnaðarmennirnir verða komnir þá... Posted by Picasa

 
 
Dálítið erfitt að vera kyrr... Posted by Picasa

 
 
Afmælisbarnið og afi Sigurður höfðu það gott í sólinni. Posted by Picasa

 
 
Orðin nógu stór til að flytja að heiman? Posted by Picasa

 
 
Dagur og Þórdís frændsystkin voru glæsileg. Posted by Picasa

sunnudagur, ágúst 20, 2006

 

Menningarsukk og svínarí

 
Nína Þorbjörg, Eyjólfur Logi og mömmur skruppu í bæinn í morgun í róló-leiðangur og matarkexát á Austurvelli. Gáfum öndunum og það var ekki vanþörf á eftir ævintýrin sem þær hafa án efa lent í í gær, á "menningar"nótt. Tjörnin var full af sígarettustubbum, rusli og bjórdósum. Á bakkanum stóð einmana háhælaður skór úr rauðu rússkinni, fullur af gruggugri tjarnarslepju. Menningin skein af borginni í morgun...eða þannig.
Nöldur nöldur frá Frk. Var bara heima á menningarnótt. Annað árið í röð. Maður mætir kannski bara niður á Austurvöll á næsta ári með flösku af Opal, kassa af bjór og harmonikku. Í pollagalla, með svona sjálflýsandi hálsfesti og útilegustól með vösum fyrir bjórdósirnar. Verð agalega menningarleg. Slæ í gegn. Posted by Picasa

 
  Posted by Picasa

 
  Posted by Picasa

 
 
Alvar AAlto hornið: Þar sem Aalto vasinn er sjötugur um þessar mundir fékk hann sinn sess í Aalto horni síðunnar. Eins og glöggir menn gætu tekið eftir fórnaði ég blómum úr okkar eigin garði í þessa uppstillingu. Posted by Picasa

laugardagur, ágúst 19, 2006

 

Þolrifin

Síðustu dagar eru búnir að vera rússíbani hjá mér og Nínu Þorbjörgu (Árni Grímur hefur að mestu misst af rússíbananum vegna anna í vinnunni). Nína Þorbjörg byrjaði nefnilega í aðlögun hjá dagmömmunni sinni á mánudaginn. Ég hafði hugsað mér að taka þessa viku í aðlögun (eins og tíðkast hjá mörgum) þannig að hún væri farin að vera allan daginn hjá dagmömmunni í næstu viku. Þá gæti ég einbeitt mér að því að skrifa grein sem ég á eftir og þarf helst að klárast fyrir mánaðarmótin. En, það verður að passa sig á að reikna með Faktor X þegar svona áætlanir eru gerðar (Faktor X = Nína Þorbjörg). Faktor X ákvað nefnilega að aðlagast bara ekki neitt. Faktor X grét bara og öskraði út í eitt hjá dagmömmunni og lét sér ekki segjast. Það endaði með því að ég hélt í höndina á Faktor X alla vikuna hjá dagmömmunni, þurrkaði horinn og passaði dudduna. Annars líst okkur ofsalega vel á dagmömmuna og hina krakkana...þetta verður örugglega hið besta mál í vetur þega Faktorinn hefur opnað augu sín gagnvart þeim möguleika að þarna er hægt að hafa það skemmtilegt. Þetta tekur samt óneitanlega á eins og staðan er núna...
Nína Þorbjörg er svo áfram bara ótrúlegur dugnaðarforkur og "skokkar" um allt (er eiginlega komin yfir það að ganga). Leit við í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis í morgun og fylgdist með upphituninni og skemmtiskokkinu og sá fólkið koma í mark eftir 10 og 21 km hlaupið. Ætlar sér stóra hluti á þessu sviði á næsta ári, það er alveg augljóst. Sveiflaði sér í takt við tónlistina í upphituninni og baðaði út öllum öngum, söng meira að segja með. Við sáum Ólöfu koma í mark á glæsilegum tíma eftir 10 km hlaupið og Nína Þorbjörg fékk að naga verðlaunapeninginn hennar og smakka blátt Powerade, sem er mjög mjög gott. En, að öllu gamni slepptu held ég að maður verði bara að stefna á 10 km að ári. Er ekki ágætt að setja þessa yfirlýsingu hérna á síðuna?...erfitt að bakka með það. Verð bara að fara að blása rykið af skokkprógramminu mínu sem gleymdist og grófst þegar ég fór að vinna aftur á Lansanum. Skora á Lansann að heita á mig í hlaup á næsta ári...það væri almennileg starfsmannastenfa og mannsauðsstemning.

þriðjudagur, ágúst 15, 2006

 

Stuðhelgi að baki

 
Tókst að komast austur fyrir fjall á sunnudaginn og eiga æðislegan dag í sveitinni á "ættarmóti" með Snæju frænku og co. Það veitti ekki af þar sem foreldrar fóru hamförum í skemmtanalífinu dagana á undan og voru í harðri samkeppni varðandi þynnku og svefnleysi. Árni Grímur náði þó öruggu forskoti á Gay pride kvöldinu og eiginlega ekkert hægt að deila um það. Nína Þorbjörg kíkti líka á Gay pride með mömmu og Fríðu, Mæju og Hólmfríði vinkonum og skemmti sér bara sérstaklega vel. Hitti Inga, Áslaug og Iðunni og Gunnu Dóru og Helgu Sólveigu...sem sagt fullt af litlum dömum í Gay pride gír. Endaði fjörið á Súfistanum útötuð í súkkulaðiköku og rjóma. Í sveitinni var svo steikjandi hiti og sól, léttvín, humar, lambagrillkjöt og ís. Ég brann öðru megin og Árni Grímur hinum megin. Í sveitinni var líka Margrét Mist frænka, en hún er einmitt að byrja í aðlögun núna í vikunni með Nínu Þorbjörgu hjá Þórunni dagmömmu. Munum örugglega tjá okkur um það á næstunni... Posted by Picasa

þriðjudagur, ágúst 08, 2006

 

Atvikið með þeytarann

Ákvað að vera sérlega góð við Árna Grím á frídegi verslunarmanna og baka glæsilega skúffuköku til að hann hefði eitthvað að hlakka til eftir vaktina. Við Nína Þorbjörg fórum í 10-11 í sérstaka kökubakstursferð og það var mikil spenna í mannskapnum. Það varð úr að hafa þetta svo kallaða "pönnuköku", þ.e. köku bakaða á grillpönnunni okkar...mjög vel heppnað dæmi þótt ég segi sjálf frá. Var eldhress að þeyta eggin á meðan súkkulaðið bráðnaði yfir vatnsbaði og ofninn hitnaði. En, úps, trylltist Nína Þorbjörg bara úr hræðslu yfir hljóðinu í þeytaranum. Og þá meina ég TRYLLTIST. Hef aldrei heyrt hana gráta svona mikið eða vera svona hrædda. Hún varð eldrauð og horinn og tárin streymdu. Þar sem pönnukökugerð var komin vel á veg og rándýr hráefnin í ýmsum fösum undirbúnings var eiginlega ekki aftur snúið. Reyndi að einangra Nínuna frá hávaðanum í öðru herbergi, með uppáhaldsbarnaefnið í sjónvarpinu og snuð í munni. Fljótlega barst tryllingslegur grátur úr stofunni og ég kom að minni liggjandi í gólfinu, baðaða í nýrri sendingu af tárum. Þarna voru eggin hálfþeytt og þannig varð það bara að vera. Restin af kökugerðinni einkenndist af ofsahræðslu Nínu Þorbjargar við eldhúsið í heild sinni og því má segja að maður hafi kastað til höndum. Ég rétt náði að róa hana fyrir svefninn og hafði verulega mikið fyrir því. Ótrúlegt hvað getur komið þessum krílum úr jafnvægi. Eftir þetta leiðindaatvik er hún síðan allt í einu líka orðin hrædd við hárþurrkur og háþrýstidælur. Ætli það verði nokkuð ryksugað á þessu heimili framar? Nei, nei.

 
 
Fékk að kíkja aðeins til pabba í vinnuna svo hann gleymist nú ekki bara alveg. Posted by Picasa

 
 
Nína Þorbjörg Tjarnardama. Posted by Picasa

 
 
Endurnar sem við erum með í fæði. Posted by Picasa

sunnudagur, ágúst 06, 2006

 

Mýflugur, vespur og bitvargur

 
Við mæðgurnar erum búnar að eiga svona Verslunarmannahelgi í mýflugumynd. Árni Grímur er að vinna alla helgina frá morgni til kvölds svo við erum bara að stússast hérna í bænum. Fórum reyndar alla leið í Heiðmörk í dag og týndum helling af sveppum með ömmu og afa. Þetta var síðan smjörsteikt og borðað og ég finn bara ekkert á mér, þvílíkt frat. Höfum barasta skemmt okkur vel, hitt ýmsar góðar vinkonur og maður búinn að fá sinn skammt af sushi, hvítvíni og skemmtun.
Þess á milli höfum við verið hálfgert ofurhetjuteymi, haldið áfram að fóðra endurnar á Tjörninni og ungana þeirra (og líka andakarlana, samt ekki eins mikið). Gengum meira að segja svo langt að fóðra máv nokkurn sem við vorkenndum allt í einu svo hrikalega...auðvitað eru þeir svangir líka. Satt best að segja má reyndar sleppa öllu þessu "við" hér á undan og skipta því út fyrir "ég". Nínu Þorbjörgu gæti ekki verið meira sama um þetta andastúss í mér, hefur miklu meiri áhuga á flugvélum og blómum (líka njóla og hundasúrum). Hinn ofurhetjupakkinn hefur beinst að vespuófétum sem eru alltaf að kíkja í heimsókn inn um gluggann og valda almennu fjaðrafoki. Sem sönn nýbökuð móðir er ég öll í því að fórna mér fyrir afkvæmið og hendi mér í veg fyrir vespurnar. Þær hafa samt eiginlega engan áhuga á mér. Vilja bara komast aftur út í "blíðuna".
Svo er það frk. Bíta Fast, má ekki gleyma að minnast á það. Frk. Bíta Fast lætur sér nú venjulega nægja að rétt narta í mömmu sína, er þó farin að færa sig upp á skaftið svo mér er að verða nóg um. Þetta bitskeið er eitthvað sem ég hef kviðið fyrir og er greinilega hafið hér á bæ. Maður verður nú líka að skilja að það er erfitt að standast svona girnilegan bita. Frk. Bíta Fast virðist líka vera farin að segja mamma (sem bræðir mann alveg gjörsamlega þótt maður sé blár og bitinn) og er búin að taka 15 skref óstudd. 15 SKREF (bara ef fólk nennir ekki að lesa allt hitt blaðrið í mér). Posted by Picasa

fimmtudagur, ágúst 03, 2006

 

Sorglega Tjörnin og sumarið sem er búið

Byrjaði í sumarfríi 1. ágúst og sumarið virðist vera komið og farið síðan þá. Síðustu tveir dagar voru æðislegir í einu orði sagt og við Nína Þorbjörg nýttum þá í botn. Fórum í pikknikk á Austurvöll báða dagana og borðuðum flest allar máltíðir úti. Vorum duglegar að fá fólk með okkur í sólarsleikingarnar og ætlum að halda því áfram. Það er einnig velkomið að hafa samband við okkur ef menn hafa áhuga á að tölta um miðbæinn með polla í skónum og helbláa fingur...það er svona í spilunum fyrir afgang sumarsins að því er virðist.
Erum búnar að uppgötva andamömmu með heila 3 unga á tjörninni og kíkjum til hennar á hverjum degi. Mávarnir eru búnir að éta flest alla hina ungana, þannig að þessi mamma hefur greinilega verið útsmognari en hinar. Stemningin á Tjörninni er sem sagt sorgleg í meira lagi, fullt af stæltum og grimmdarlegum mávum með stélið sperrt og einstaka "barnlaust" andapar. Keypti brauð handa útsmognu andamömmunni og co. í dag og gaf þeim eins og ég gat án þess að laða mávagerið að. Nína Þorbjörg er ekki enn komin á það stig að gefa öndunum brauð heldur þarf hún sjálf að láta skutla í sig molum eins og endurnar. Verður verulega súr ef hún þarf að bíða lengi eftir að það komi að henni. Við lok brauðpokans var ég farin að vorkenna mávunum svo mikið að þeir fengu smá skorpur líka. Kannski bjargar maður nokkrum andarungum með því að splæsa brauði á mávana, þeim er nú líka vorkunn...öll sílin búin og svona...
Nína vill blogga og hér kemur hennar innlegg:
gb nv y7g hj gv
Síðan þarf maður að fara að hætta þessi, mín er orðin eðalsvekkt og gefur frá sér stríðsöskur og óþolinmæðishljóð. Ætlar svo að ögra mér með því að reyna að koma ofan í sig einu stk. fjöltengi. Ég sé við því og tek tengið úr sambandi...múhahaha.

 
 
Því fleiri fíflar þeim mun betra Posted by Picasa

 
 
Framtennurnar koma í ljós í sólinni í garðinum Posted by Picasa

 
 
Sjónvarpið lumar á endalausu gríni Posted by Picasa

 
 
Kemur maður labbandi... Posted by Picasa

This page is powered by Blogger. Isn't yours?