sunnudagur, september 24, 2006
Salou
Komin á ströndina. Ferðin gekk ótrúlega vel, Nína Þorbjörg var eins og innfædd, elskaði sjóinn og sundlaugina og heillaði viðstadda upp úr skónum. Við höfðum það líka gott, drukkum fullt af bjór, urðum ekkert brún, ferðuðumst um allt í spænskum strætó (sem er framvörður skipulags, þjónustu og nákvæmni í heiminum í dag...eða bara ekki), borðuðum hráskinku í kílóatali, sögðum "gracias" og "hola" og skoðuðum Barcelona og Tarragona og turninn í Salou sem er eina fornleifin þar í bæ (þvílíkt svekkelsi að hafa ekki fleiri fornleifar). Okkur tókst líka að týnast í 5 stjörnu hótelahverfinu, lenda í þrumum og eldingum sem hristu hótelið og slógu út rafmagnið, vera boðnar gullkeðjur, sólgleraugu og hass, kaupa endalaust magn af uppblásnu dóti handa Nínu Þorbjörgu (þ.á.m. heila sundlaug), borða lasagna á Old Brown Cow og fara ekki í eina einustu skoðunarferð með íslenska fararstjóranum.
Árni Grímur, Þorgerður og Nína Þorbjörg á "penthouse" svölunum sem foreldrar Árna Gríms fengu. Okkar svalir voru engan veginn með eins flott útsýni en hins vegar höfðum við lifandi tónlist á hverju kvöldi í boði "synthesizer"-gaursins á barnum beint fyrir neðan. Æðislegur kaupbætir. "Synthesizer"-gaurinn smalaði að sér gríðarlegum fjölda fólks og pakkfyllti barinn og svo var sungið með fram yfir miðnætti. Dæmigert lagaval:
Viva Espana lagið
Guandala mera (hömm, eða eitthvað svoleiðis)
Macarena
Are you lonesome tonight?
Una paloma blanca
My my MYYYY Delilah
Nína Þorbjörg fékk hreinlega ekki nóg af þessum listræna einstaklingi og áhangendum hans. Æðisleg kvöldskemmtun fyrir smábörn.
Ekta veitingastaðir bjóða manni að velja matinn meðan hann er enn lifandi svo maður geti tekið þátt í samviskubitinu sem fylgir því að drepa greyið dýrin. Ég gat ekki hugsað mér að láta slátra svona sætum humrum og fékk mér bara nautasteik í staðinn.
Sjórinn var tekinn með trompi. Mín vildi helst vaða beint út í hann á fullri ferð, enda saklaus skemmtun þar á ferð.
Dagur frændi var mjög liðtækur í sandinum á ströndinni á meðan Bleik og Blá nutu útsýnisins yfir sjóinn.
Hver var hrókur alls fagnaðar í sundlauginni? Kannski Nína Þorbjörg? Henni var alveg sama þótt laugin væri djúp og vatnið ískalt, fannst þetta bara æðislegt og rosalega fyndið. Þangað til sundlaugarvörðurinn rak hana upp úr af því að hún var með kút. Það náttúrlega gengur ekki þegar maður er orðinn 1 árs.
Tarragona er falleg og vanmetin borg, rétt hjá Salou. Nína Þorbjörg skrapp í dagsferð þangað með ferðafélögum og sést hér fyrir utan dómkirkjuna sem stendur efst í eldgömlum miðbæjarkjarna. Hún hljóp síðan um allt í kirkjunni og fékk sér pela í klausturgarðinum. Ekta miðaldastemning.
Það var brjálað veður 3 daga í ferðinni, rok, rigning, þrumur, eldingar og rafmagnsleysi. Ströndin fór alveg í köku í öllum látunum og göturnar urðu eins og stórfljót. Sumir leystu þennan vanda með því að skella sér niður göturnar á vindsængum, sem er auðvitað snilld.
Árni Grímur og Þorgerður að stinga mig af í gotneska hverfinu í Barcelona. Nína Þorbjörg varð eftir á Salou með ömmu og afa og við fengum heilan barnlausan dag í borginni. Mjög gott að geta þvælst um og setið á kaffihúsum í rólegheitum.
Þreyttar í morgunsárið eftir langa heimferð. Nína Þorbjörg var reyndar ótrúlega góð í flugvélunum og svaf allan tímann báðar leiðir. Sem er eins gott því að það var greinilegur titringur í þeim sem áttu að sitja nálægt okkur....það er nefnilega fátt verra en að vera í næstu sætaröð við gargandi barnið, þ.e. annað en að vera foreldri gargandi barnsins.
þriðjudagur, september 19, 2006
Komin frá Katalóníu
Nína Þorbjörg og kompaní eru mætt heim frá sólarlöndum...fleiri myndir og ítarleg umfjöllun væntanleg! Segjum þó að menn hafi verið verlulega hressir í útlandinu.
laugardagur, september 02, 2006
"Guðmundur"
Nú er Nína Þorbjörg búin að vera með hita í 6 daga og það er ekki að sjá að hann sé neitt að minnka. Sjálf var hún bara hress framan af og hljóp um allt með þvílíkt flott nefrennsli í alls konar smart litum. Síðustu daga hefur hún hins vegar verið pirraðri og pirraðri og nú í dag grætur hún bara út í eitt. Vill ekki borða, vill ekki sofa, vill ekki gera neitt, allt er ömurlegt. Það er búið að hlusta hana og skoða í eyrun og meta stöðuna endurtekið, virðist samt vera vírus og ekkert annað. Síðan er hún líka að fá algjöra hlussutönn/-jaxl í neðri góm og er svakalega bólgin. Er viss um að það bætir ekki ástandið. Við Árni Grímur erum að upplifa þetta eins og þegar hún var nýfædd og almennt svekkt yfir því að vera bara smábarn og geta ekki neitt. Þá var maður labbandi um íbúðina með hana meira og minna þegar hún var vakandi. Nú er maður í sama pakkanum nema hún vill ekkert sofa. Svo er svo erfitt að horfa upp á hana svona miður sín.
Utanaðkomandi aðstæður hafa ekki verið mjög hagstæðar heldur. Nína Þorbjörg átti frekar ömurlega nótt í nótt og var svo vakin eldsnemma af einhverju liði sem hafði ákveðið að halda eftirpartý á gangstéttinni fyrir framan svefnherbergisgluggann okkar. Sat bara þar og drakk bjór og reykti og talaði um einhvern Guðmund út í eitt. Vá hvað ég hef ekki húmor fyrir þessu lengur! Maður hefði alveg getað verið þetta fólk fyrir einhverjum árum, í góðu stuði og alls ekki að spá í að það gæti verið sárlasið barn á næstu grösum sem maður er að vekja. Langaði mest að henda gömlu skyri úr ísskápnum eða leifunum af afmælistertunni í hausinn á þeim. Svo hefur hún ekkert viljað sofa í dag nema litla dúra og bara grátið og grátið. Náði sér loksins niður í vagninum í ganginum...það stóð stutt þar sem einhver karl bankaði upp á til að leita að einhverjum öðrum karli sem býr ekkert hérna. Kannski Guðmundi.
