mánudagur, desember 25, 2006

 

Gleðileg jól!

Það kom að því að maður léti heyra í sér!
Langaði að óska öllum sem kíkja hér við gleðilegra jóla og farsæls komandi árs! Vona að þið hafið það sem allra best yfir hátíðarnar!
Sökum anna sendum við ekki út nein jólakort þetta árið...vonandi verður það í eina skiptið sem við erum svo lítið jólaleg. Þannig að þetta er víst jólakortið, þessi glæsilega færsla. Njótið vel!
Ferðasagan frá NY verður að bíða eitthvað, eins og allar aðrar sögur reyndar. Við erum svakalega önnum kafin, komin með stigann niður í kjallara og að flytja þangað, vera lasin (þ.e. við mæðgur), vinna vinna vinna, halda jól og undirbúa brúðkaup. Er alveg að fara úr límingunum yfir þessu öllu, get þó andað léttara í dag þar sem það er jóladagur og því ekki hægt að gera neitt nema lufsast um í náttsloppnum. Nína Þorbjörg er komin á sýklalyf og ég líka...glæsilegt ástand.
Þar sem um jólakort á að vera að ræða ætlaði ég að setja inn myndir af skvísunni í jóladressinu....en bloggerinn sér ekki ástæðu til þess. Þannig að myndskreytingar bíða eitthvað áfram.
Kveðjur frá jólalegustu fjölskyldu veraldar!

þriðjudagur, desember 05, 2006

 

Hjartað og internetið

Ég virðist vera búin að setja inn nóg af myndum af Nínu Þorbjörgu. Punktur. Alla vegana finnst internetinu það...hef verið að reyna og reyna að setja inn nýjar og ferskar myndir þar sem krullurnar njóta sín einstaklega vel, en það ætlar bara ekki að ganga. Það vita svo sem flestir hvernig Nína lítur út, nóg er af myndum, en þetta minnkar aðeins tækifærin mín til að monta mig. Kem með nýtt mont um leið og internetið gefur grænt ljós.
Annars er tilefni þessara skrifa það að ég er að fara að skella mér til New York á ráðstefnu og verð því ekki mjög virk á síðunni á meðan. Bara svo fólk fari ekki að hafa áhyggjur...er nefnilega hreinlega alltaf að skrifa og tjá mig svo það hlýtur einhver að vera fljótur að taka eftir því ef mig vantar í nokkra daga. Það þarf sem sagt ekki að velta sér upp úr því, ætla bara að njóta mín í USA, versla, borða og læra um hjartað. Kem svo með brakandi ferskt tíðindi úr heimi hjartalækninga um leið og internetið leyfir.
Jólaundirbúningurinn er annars í fullum gangi á heimilinu og erfitt að kúpla sig frá honum. Er búin að fara í Ikea-skrýmslið (er alveg hissa að ég sé bara ekki enn þá þar, grenjandi og rammvillt inni í smávörudeildinni, búin að skríða í fósturstellingu í risainnkaupakerrunni). Keypti jóladót þar og líka smá Nínudót (risalaufblað sem við vitum ekkert hvað við eigum að gera við, kameldýr og kolkrabba). Síðan bakaði ég eitt stk. aðventukrans, nánar tiltekið svona fléttubrauðkrans, og skreytti hann með borðum og fiðrildum og kertum auðvitað. Því miður féll kransinn ekki að smekk annars heimilisfólks (var meira svona klessuhringur en fléttuhringur) og þótti ekki einu sinni hæfur til áts. Þannig að hann er á leiðinni í ruslið og maður kominn aftur á byrjunarreit. Ætli maður endi ekki á að vera kominn með krans rétt fyrir síðasta sunnudaginn í aðventu...eins og venjulega.
Að lokum:
1) Orðabók Nínu Þorbjargar:
"D-------aaaa---tt" = Datt
"Akk" = Takk
"Mamamamamamama" = Mamma
"Pababababab" = Pabbi
Svo hefur hún líka sagt kisa ("kis") og hæ hjá dagmömmunni sinni...er greinilega ræðnari þar en heima.
2) Besta búðin í bænum: Nóatún í JL-húsinu (bara svo að það séu einhverjar gagnlegar upplýsingar í þessari færslu).

This page is powered by Blogger. Isn't yours?